Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Qupperneq 70

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Qupperneq 70
244 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR að orði um stuðla og höfuðstafi að þeir væru „upphaf til kveðandi þeirrar er saman heldur norrænum skáldskap, svo sem naglar halda skipi saman er smiður gerir, og fer sundurlaust ella borð frá borði“. Eitthvað svipað mundum við segja enn í dag ef við ættum að telja kosti stuðlanna. Okkur mundi þá helzt verða að orði að þeir byndi ljóðlínurnar fastar saman, skorðuðu kvæðin betur, og það hefði aftur áhrif á alla formtilfinninguna, gerði hana öruggari og traust- ari. Ekki mundum við heldur láta undir höfuð leggjast að geta þess að gaman sé að kunna nú einir manna þessa ævafornu íþrótt sem kynstofn vor hefur iðkað upp undir 2000 ár og á upptök sín langt aftur í rammri heiðni og forneskju. Hins vegar yrði naumast nein- um þeim manni sem borið hefur við að kveða á íslenzku orðfall ef telja skyldi skuggahliðar stuðlanna. Hann mundi þá framar öllu nefna að þeir gera skáldskapariðjuna hjá oss erfiðari og vanda- samari en hjá öðrum þjóðum. Orðfæri íslenzkra ljóða hljóti að fjar- lægjast eðlilegt mál meira en annars staðar. Utlend kvæði verði sjaldnast íslenzkuð án þess að mikið fari forgörðum, af því að hömlurnar séu svo sterkar, leiðin svo þröng. Og loks gæti vel verið að einhver bætti því við að sér þættu stuðlar stundum alls ekki fagrir, heldur jafnvel þreytandi, háværir og uppivöðslusamir, eink- anlega í stuttum Ijóðlínum. En þegar öllu væri á botninn hvolft þykist ég vita að mótbárurnar mundu reynast nasalæti. Því að hjá hverjum þeim sem fengið hefur brageyra sitt mótað af íslenzkum kveðskap er stuðlatilfinningin svo rótgróin að hann getur ekki liugs- að sér að yrkja án þeirra. Ég hef stundum borið það við af rælni. En mér er ekki til neins að reyna, því að ég treysti mér hlátt áfram ekki til að heyra hvort hljómfall íslenzkrar vísu er rétt, sé hún óstuðluð. Stuðlarnir gera enn sem forðum kröfur til orða sem miklu varði í setningunni. Að vísu væri ókleift í rímuðum háttum að fylgja hnigi og risi ræðunnar með svipuðu írelsi og í fornyrðislagi eða ljóðahætti, en hins vegar fer ekki vel að slaka svo á kröfunum að orð sem litill eða enginn þungi ætti að fylgja í mæltu máli beri stuðul. Samt má finna þess næg dæmi hjá skáldum: Eg veit að allir eru flúnir úr bænum — Sjá, auð er gatan þar sem fólkinu dvaldist.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.