Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Page 6
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
manna þar sem leitað er til þeirra hvers og eins um stuðning við fyrirhugaða
byggingu. Þar er vinsamlega farið fram á að allir félagsmenn og vinir Máls og
menningar hvar sem er á landinu leggi fram 100 kr. á ári í þrjú ár, 1955-—
1957, félaginu til styrktar til að koma húsbyggingu sinni upp á tuttugu ára af-
mœlinu. í staðinn er öllum sem þessa upphœð leggja jram heitið í þakkarskyni
á árinu 1957 skrautlegri úlgáfu á skáldskap Jónasar Hallgrímssonar, til minn-
ingar um 150 ára afmæli hans.
Bókaútgáju liér á landi er erfiðara að reka en flestir gera sér í hugarlund.
Útgáfufyrirtœki eru jljót að sökkva í slculdir og fœst verða langlíf. Samtök
fjöldans hafa gert Máli og menningu jœrt að starja. Kostnaður við byggingu
Vegamóta er áœtlaður fjórar miljónir króna. Fljótt á litið virðast 300 kr. frá
einstaklingi segja lítið í þá hít, vera eins og dropi í hafi. En ej 4—-5 þúsund
menn leggja saman er komin álitleg upphœð. Það er galdurinn við samtök
fólksins. Með jramlagi sem kemur létt á hvern einstakan er jafnvel auðvelt að
vinna stórvirlci, ef nógu margir lijálpast að. Skilyrði þess að verulegt gagn
verði að þessu framlagi félagsmanna til byggingarinnar er að allir séu sam-
taka, enginn hlíji sér eða skerist úr leik. Líkindi eru einnig til að margir utan
við félagið veiti þessu máli stuðning, ef félagsmenn leita til þeirra.
Útgcía helguð 150 ára aímæli Jónasar Hallgrímssonar 1957
A síðustu árum hafa komið út nokkrar útgáfur á verkum Jónasar Hall-
grímssonar, en þœr hverja af markaðinum jafnóðum. Svo vinsælt er skáldið,
og hver nýr árgangur æskunnar leitar Ijóð hans uppi eða jœr þau að gjöf. Á
150 ára afmœli Jónasar langar Máli og menningu að gera vandaða útgáfu á
skáldskap hans, Ijóðum, sögum og œjintýrum, frumsömdum og þýddum. Hún
verður með nokkrum sýnisliornum af eiginhandarritum af Ijóðum skáldsins,
og myndslcreytt að öðru leyti eftir því sem jöng eru á. Halldór Kiljan Laxness
hefur tekið að sér að sjá um útgáfuna og ritar forspjall að lienni, en Hafsteinn
Guðmundsson annast frágang hennar frá prentlistarsjónarmiði. Útgájan verð-
ur eingöngu gerð handa þeim sem styðja með áðurnefndu framlagi húsbygg-
ingu Máls og menningar, og verður hún árituð af stjórn félagsins.
116
i