Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Side 11
MÓTMÆLI GEGN KJARNORKUSTYRJ ÖLD
VígbúnaSarkapp leiðir til styrjaldar
Menn skyldu ekki loka augunum fyrir
því, að kjarnorkustyrjöld vofir nú yfir og
verður ekki hindruð nema nógu víðtæk
mótmæli almennings um heim allan komi,
áður en verður um seinan, viti fyrir þær
ríkisstjórnir sem kjarnorkuvopn hafa undir
höndum. Þeir sem eru áfjáðastir í vopna-
vald og styrjöld reyna að telja almenningi
trú um að hamslaus hervæðing og stríðs-
undirbúningur stuðli að varðveizlu friðar-
ins, og smápeðin í Atlantshafsráðinu taka
undir þessa augljósu fjarstæðu sér til afsök-
unar eða til að berja í bresti slæmrar sam-
vizku. Svo langt ganga öfugmælin að talið
er til eflingar friði að endurvígbúa þýzku
hernaðarstefnuna og fá gömlum hershöfð-
ingjum Hitlers, fullum af hefnigimi eftir
ófarir síðustu styrjaldar, kjarnorkuvopn í
hendur. Jafnvel vetnissprengjan, vopn ein-
göngu til múgmorða, er básúnuð sem „frið-
arvopn“, en hótað í sama orði að beita
henni í styrjöld. Viðkvæðið er reyndar allt-
af: í vamarskyni; ef á oss verður ráðizt. En
í sömu andrá er sú kenning boðuð, að í
kjarnorkustyrjöld sé eina vörnin að verða
fyrri til árásar!! Og þar með er öllu ljóstr-
að upp. Kjarnorkuvopn eru í eðli sínu árás-
arvopn. Margir segja í hugsunarleysi: vetn-
issprengja er svo ægileg að enginn þorir að
kasta henni. Staðreynd er hins vegar: hers-
höfðingjar jafnt sem ríkisleiðtogar hafa
opinskátt í hótunum að beita henni í næstu
styrjöld. Ennfremur: kjarnorkusprengjum
hefur verið varpað á friðsamar borgir í
Japan. Og yfirlýst er að kjarnorkusprengj-
um hefði verið beitt í Kóreustríðinu, eins
og margsinnis var hótað, ef Bandaríkja-
stjórn hefði ekki séð sitt óvænna vegna und-
irskrifta Stokkhólmsávarpsins, þeirra 500
miljóna sem heimtuðu bann við kjarnorku-
vopnum og kröfðust refsinga gegn hverri
þeirri ríkisstjórn sem yrði fyrst til að beita
slíkum vopnum. Hverjum manni má vera
augljós sannleikur að vígbúnaðarkapp leið-
ir til ófriðar, og að vopn eru til þess fram-
leidd að þeim sé beitt ef til styrjaldar kem-
ur, án hlífðar, án undandráttar; og því
skæðari, því betri vopn.
Samkomulag um afvopnun
í stað vígbúnaðar og hótana
Hið eina sem hindrað getur kjarnorku-
stríð er samkoraulag stórveldanna um af-
vopnun, um bann við kjarnorkuvopnum og
stöðvun nú þegar á framleiðslu þeirra. Og
leiðin til að knýja fram slíkt samkomulag
er nógu almennar og einbeittar kröfur fólks-
ins í heiminum, nógu víðtækt starf allra
sem vilja frið, nógu öflug samtök almenn-
ings í hverju landi, sem geri hverri ríkis-
stjórn, sem undirbýr stríð og með vopnum
ógnar, heyrum kunnugt: vér, alþýða heims-
ins, höfum auga á gerðum ykkar, vér for-
dæmum stríðsundirbúning ykkar, vér heimt-
um af ykkur samkomulag, friðargerð, bann
við framleiðslu á kjamorku- og vetnis-
sprengjum, afvopnun í stað aukins vígbún-
aðar.
Með nógu öflugum mótmælum geta
þjóðirnar hindrað kjarnorkustríð
Þeir sem forystu hafa í Heimsfriðarhrevf-
ingunni, en forseti hennar er vísindamaður-
inn Frédéric Joliot-Curie, hafa bjargfast
traust á því að með því að reisa nógu sterkt
almenningsálit í heiminum gegn undirbún-
ingi kjarnorkustyrjaldar sé hægt að koma í
veg fyrir hana. Þeir benda á að friðaröflun-
um hefur hingað til tekizt að hindra þriðju
heimsstyrjöldina. Það tókst að koma á friði
í Kóreu áður en styrjöldin þar breiddist
víðar út. Það heppnaðist að semja vopnahlé
í Indó-Kína þrátt fyrir tilraunir Bandaríkj-
121