Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Síða 12
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
anna til að' koma þar öllu í bál. Þýzkalands-
deilan hefur ekki ennþá leitt til styrjaldar í
Evrópu hversu hætt sem oft var komið.
Friðaröflin hafa hverju sinni borið sigur af
hólmi. Von mannkynsins er að svo geti orð-
ið framvegis. Síðustu mánuði hefur reyndar
styrjaldarhættan jafnt í Evrópu sem Asíu
færzt geigvænlega nær með hraðaukinni
framleiðslu kjarnorkuvopna, endurhervæð-
ingu Vesturþýzkalands, opinskáum stríðs-
hótunum og stríðsundirbúningi. En sam-
vizka mannkynsins er einnig vakin. Hún rís
gegn hugmyndinni um eyðingu í kjamorku-
styrjöld. Þjóðir Evrópu komast í uppnám
við þá tilhugsun að hershöfðingjum nazism-
ans skulu lögð kjarnorkuvopn í hendur.
Þjóðir Asíu allar sem ein fordæma þá hótun
Bandaríkjastjómar að beita kjamorkuvopn-
um gegn Kína ef til átaka kemur á For-
mósusundi. Hver vísindamaður af öðram,
og heil samtök vísindamanna í Bandaríkj-
unum, Frakklandi og Bretlandi, vara opin-
berlega við kjarnorkustríði og vetnis-
sprengjutilraunum. Æ fleiri stjómmála-
menn af ólíkustu flokkum og ríkisstjómir
ganga beint og óbeint í lið með Heimsfrið-
arhreyfingunni. Starfsvið hennar er að sam-
eina öll þessi öfl til allsherjar samræmdrar
baráttu um öll lönd gegn vígbúnaðaræðinu
og sérílagi framleiðslu hinna ægilegu múg-
morðsvopna. Hún er sannfærð um að það
sé á valdi mannkynsius með nógu almenn-
um einbeittúm mótmælum að korna í veg
fyrir nýja heimsstyrjöld, það kjarnorkustríð
sem yfir vofir.
VínaróvarpiS
Á grundvelli þessa ákvað miðstjórn
Heimsfriðarráðsins á fundi í Vín 19. jan.
s.l. að hefja um heim allan undirskrifta-
söfnun að ávarpi gegn undirbúningi kjarn-
orkustyrjaldar. Gengur það undir nafninu
Vínarávarpið, og er birt hér á öðrum stað.
Það felur þrennt í sér: Vekur í fyrsta lagi
athygli á þeirri staðreynd að verið er að
undirbúa kjarnorkustríð og jafnframt reynt
að sannfæra almenning um að hún sé óhjá-
kvæmileg. í öðru lagi felur það í sér viðvör-
un til hverrar þeirrar ríkisstjórnar sem
hleypir af stað kjamorkustyrjöld og heit-
strenging um að standa í gegn undirbúningi
hennar. Og í þriðja lagi kröfu um að birgð-
ir kjarnorkuvopna í öllum löndum verði
eyðilagðar og framleiðsla þeirra nú þegar
stöðvuð.
Nær 500 miljónir undirskrifta
í marzlok
Miðstjórn Heimsfriðarráðsins kom aftur
saman á fund í Vín 11.—14. marz til að
ræða undirskriftasöfnunina og einnig undir-
búning að alþjóðaþingi friðarsinna sem háð
verður í Helsinki í Finnlandi 22. maí n.k.
Ályktanir fundarins í þessum málum eru
birtar hér á eftir. Að Vínarávarpinu voru þá
komnar 150 miljónir undirskrifta, þar af 23
miljónir í Japan, en mörg lönd (Sovétríkin,
Frakkland, Þýzkaland o. fl.) ekki farin af
stað. Fulltrúar vom sannfærðir um, af þeirri
ólgu sem risin er í löndunum, að undir-
skriftafjöldinn nú fari langt frarn úr þeim
500 miljónum sem undirrituðu Stokkhólms-
ávarpið, almenningur fagni því að eiga kost
á að láta mótmæli sín í Ijós gegn hinum
tryllta styrjaldamndirbúningi. Fulltrúi
friðarhreyfingar Indlands, D. D. Kosambi
stærðfræðiprófessor í Bombay, benti á
hvernig afstaða vestrænna vísindamanna til
Heimsfriðarhreyfingarinnar hafi gerbreytzt,
m. a. í Englandi. Áður er hann var á ferð
hafi þeir ýmist ekki minnzt á friðarhreyf-
inguna eða þá í háðslegum tón. Nú hafi
þeir spurt sig að fyrrabragði og í einlægni:
Hvaða leið er til að hindra kjarnorkustyrj-
öld? Hvað ætlar Heimsfriðarhreyfingin að
gera? Þannig er óttinn vakinn hjá hverjum
122