Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Side 13

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Side 13
MÓTMÆLI GEGN KJARNORKUSTYRJÖLD Ávarp gegn undirbúningi kjarnorkustyrjaldar YMSAR ríkisstjórnir undirbúa nú kjarnorkustyrjöld. Þœr leitast við að sannjœra almenning um að hún sé óhjákvœmileg. Beiting kjarnorkuvopna myndi leiða af sér allsherjareyðingu í styrjöld. Vér lýsum yjir því, að hver sú ríkisstjórn, sem byrjar kjarnorkustyrjöld, hlýtur að fyrirgera trausti þjóðar sinnar og kalla yjir sig fordœmingu allra annarra þjóða. Vér munum nú og framvegis standa í gegn þeim, sem undirbúa kjarnorku- stríð. Vér krefjumst þess að birgðir kjarnorkuvopna í öllum löndum verði eyði- lagðar og framleiðsla þeirra nú þegar stöðvuð. Vín, 19. janúar 1955. sem um þessi mál hugsar. Sýnilegt er þegar, að geysileg þátttaka ætlar að verða í hinni nýju undirskriftasöfnun. I marzlok höfðu nær 500 miljónir undirritað Vínarávarpið, eða jafn margir og undirrituðu Stokkhólms- ávarpið, og það áður en jafn fjölmenn lönd sem Indland og Sovétríkin hófu söfnun undirskrifta hjá sér. Fullyrða má að þessi tala eigi eftir að tvöfaldast ef friðaröfl allra þjóða leggjast á eitt, og megi þá rætast er segir í ályktun Vínarfundarins 14. marz, að þjóðum heimsins takist „að láta vilja sinn í þessu efni svo skýrt í Ijós, að engin ríkis- stjórn dirfist að ganga þar í gegn“. Yfirlýsing um friðarvilja íslendinga fslendingar eiga vegna aðstöðu sinnar og fámennis meira í hættu en flestar þjóðir aðrar, ef til kjamorkustyrjaldar kemur. Þjóðin öll er í voða, þó að ekki félli hér nema ein vetnissprengja, og herstöðvar Bandaríkjanna bjóða hættunni heim. ís- lendingum ber því öllum þjóðum framar jafnt siðferðileg skylda sem lífsnauðsyn til að láta rödd sína heyrast gegn undirbúningi kjarnorkustriðs og styðja af góðum hug, hvar sem menn standa í flokki, undirskrifta- söfnun þá að Vínarávarpinu sem nú er gengizt fyrir í hverju landi heims. fslend- ingum er hér lagt tækifæri upp í hendur til að friðþægja fyrir afglöp stjómarvalda sinna og sýna alþýðu heimsins í verki með undirskrift sinni að þjóðin sjálf þrái frið. íslenzka friðarnefndin hefur ákveðið að hefja undirskriftasöfnun um allt land. Við skorum á hvem góðviljaðan hugsandi ís- lending að ljá þessari söfnun lið, rita ekki aðeins sjálfur undir ávarpið, heldur hvetja og aðra til þess og hjálpa til við undir- skriftasöfnunina. 123

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.