Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Síða 14

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Síða 14
Ályktanir miðstjórnar Heimsfriðarráðsins á fundi í Vínarborg 11.—14. marz 1955 Um heimsfriðarþing Bráð' liætta af kjarnorkustyrjöld vofir nú yfir öllum löndum jarðar, yfir hverju heimili og hverjum einstaklingi, körlum, konum og börnum. I stað Jjess að kjarnorkan sé tekin í þjónustu mannkynsins er hrúgað upp birgðum hræði- legustu vopna. f stað þess að þjóðirnar afvopnist eru ný hernaðarbandalög sett á laggimar. Og í stað samninga og samkomulags koma hótanir og hatursáróður. En hótanir og valdbeiting leiða til stríðs en ekki friðar. Endurvopnun Þýzkalands, Taivan — eða Formósu — viðsjárnar og íhlutun í sjálfstæðis- mál þjóða margfalda nú sundurþykki og ótta um allan heim. Ef mannkvnið heldur lengra áfram á þessari braut, verður ekkert öryggi neins staðar. Mannkynið mun ekki láta viðgangast að þessu fari lengur fram. Samvizka þess rís upp gegn hugmyndinni um tortímingu kjamorkustyrjaldar. Með öllu Jjví afli sem lífsnauðsyn krefur verða þjóðir heimsins að fylgja fram kröfunni um að kjarnorkuvopn verði eyðilögð, kröfunni um allsherjar afvopnun, um öryggi allra og virðingu fyrir sjálfstæði og rétti hverrar þjóðar. í þessum anda og í þessum tilgangi hefur Heimsfriðarráðið boðið friðarsinnum frá öll- urn löndurn jarðar til heimsþings í Ifelsinki 22. maí 1955 til frjálsra umræðna um aðkall- andi ráðstafanir til verndar alheimsfriði. Um almenna viljayfirlýsingu meS undirskriftum Samvizka allra þeirra manna sem skelfast horfurnar á gjöreyðingarstyrjöld er nú vakin um gjörvöll lönd af ávarpi Heimsfriðarráðsins, þar sem þess er krafizt að kjamorkuvopn séu eyðilögð og framleiðsla þeirra stöðvuð. Með því er komið til móts við óskir þeirra, sem hafa bjargfasta trú á því að þjóðirnar geti komið í veg fyrir tortímingu í kjarnorkustríði. Vér óskum gengis hinum fjölmörgu samtökum og áhrifamönnum og hverjum þeim raun- ar, sem rís á einn eða annan hátt gegn undirbúningi að kjarnorkustyrjöld. Hættan á kjarnorkustyrjöld hefur nú stórum aukizt. Forráðamenn þjóða hóta því opin- skátt að beita kjarnorkuvopnum. Ríkisstjórnir, sem hafa ekki ennþá yfir þessum tortím- ingartækjum að ráða hafa ýmist ákveðið að framleiða þau eða velta því nú fyrir sér. Reynt nr að réttlæta það að þessum hræðilegu vopnum sé beitt og fá menn til að líta svo á að þau séu trygging fyrir friði, enda þótt þau auki stórum árásarhættuna og geti ekki búið mannkyninu annað en dauða og tortímingu. I viljayfirlýsingu með almennum undirskriftum getur fordæming heimsins á kjarnorku- vopnum birzt með þeim hætti, að allar ríkisstjórnir, sem hafa þau vopn undir höndum, hljóti að fallast á að þeim verði útrýmt undir ströngu eftirliti, en slíkt samkomulag yrði hið mikilvægasta skref til allsherjar afvopnunar. Það er þjóðum heimsins í sjálfsvald sett af láta vilja sinn í þessu efni svo skýrt í ljós, að engin ríkisstjórn dirfist að ganga þar í gegn. 124
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.