Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Síða 17
SVÖR VIÐ SPURNINGUM
2. Þessari spurningu verður aðeins svarað þann veg, að einkis megi láta
ófreistað til að koma í veg fyrir beitingu kjarnorkuvopna. Óhætt mun að full-
yrða að það sé ein af meginforsendunum fyrir viðhaldi mannlegra samfélaga
á hnetti vorum og menningarlegri þróun þeirra, að ægiafli kjarnorkunnar
verði ekki framar beitt í hernaði. Það er lífsnauðsyn að hindra slíka misbeit-
ingu orku. Hugsanlegt er að jafnvel „tilraunir“ með kjarnorkuvopn geti valdið
neikvæðum lífeðlislegum breytingum eða vansköpun. í kjarnorkusprengjum
er falinn ógnþrunginn dauðaeldur, sem einnig getur orðið mikill þjáninga-
valdur þeim, sem komast lífs af í jöðrum bálsins og jafnvel niðjum þeirra.
3. Já.
Þorbjörn Sigurgeirsson, eðlisfrœðingur:
1. Ef til heimsstyrjaldar kemur, þar sem kjarnorkusprengjur eru aðalvopn-
in, er menningu alls mannkynsins vissulega mikil hætta búin, og með óvægi-
legri beitingu þessara vopna má vel vera að mannkynið yrði sært til ólífis og
liði undir lok hér á jörðinni.
Allt virðist benda til þess að Islendingum væri mikil hætta búin í slíkum
átökum. Sé gert ráð fyrir að hér yrði öflug og áhrifamikil herstöð má búast
við að mikið kapp yrði lagt á að eyðileggja hana og líklegt er að slíkir staðir
yrðu öðrum fremur fyrir kjarnorkusprengjum.
Þó ekki væri kastað nema einni kjarnorkusprengju á Keflavíkurflugvöll væri
mikill hluti þjóðarinnar í bráðri hættu. Ef um úraníum- eða plútoníum-
sprengju væri að ræða yrðu varla miklar beinar skemmdir á mannvirkjum í
Reykjavík. Vetnissprengja gæti hinsvegar valdið miklum skemmdum, þar sem
vetnissprengja á stærð við þá, sem reynd var yfir Kyrrahafi fyrir rúmu ári, er
talin valda algerri eyðileggingu mannvirkja innan 10—20 km. fjarlægðar frá
sprengjustaðnum. Hætta af völdum geislunar væri mikil í báðum tilfellum, þó
einkum ef um vetnissprengju væri að ræða. Telja má að enginn hluti landsins
væri óhultur fyrir geislunarhættu ef vindar og veður væri þannig, að mikið
af hinum geislavirku efnum féllu til jarðar áður en þau næðu að dreifast í
gufuhvolfinu.
2. Af því, sem áður var sagt, er ljóst og ég tel það höfuðnauðsyn fyrir á-
framhaldandi menningarlífi mannkynsins, að komið verði í veg fyrir beitingu
kjarnorkuvopna. Ef styrjöld verður og kjarnorkuvopnum er beitt, þó ekki
sé nema í smáum stíl í fyrstu, má búast við því að notkun þeirra aukist stig af
stigi með gagnkvæmum hefndarráðstöfunum. Lokaþátturinn í slíkum átökum
127