Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Qupperneq 22

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Qupperneq 22
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR í kjarnorkustyrjöld Atlanzhafsbandalagsins, sem Bandaríkin eða hinir gunnreifustu bandamenn þeirra svo sem þýzku nazistarnir með hinn nýja milljónaher sinn, búinn nýjustu amerísku kjarnorkuvopnum, geta hæglega hleypt af stað án samþykkis og jafnvel gegn mótmælum annarra varkárari ríkja, er Keflavíkurflugvöllur af þessum ástæðum eitt hið hentugasta og nauð- synlegasta tæki í hendi Bandaríkjanna til þess að „greiða fyrsta höggið“, það högg, sem allt á að velta á, samkvæmt yfirlýstri hernaðaráætlun yfirhershöfð- ingja Atlanzhafsbandalagsins. En vetnissprengjan er einnig í höndum „óvinarins“. Eftir ummælum amer- ískra og enskra sérfræðinga að dæma eru Rússar að öllum líkindum þegar lengra komnir í „tækniframförum“ á sviði vetnissprengjunnar en Bandaríkja- menn sjálfir, þótt líklegt sé, að þeir eigi enn mun færri kjarnorkusprengjur. En skv. upplýsingum amerísku kjarnorkunefndarinnar um reynsluna af vetnis- sprengjutilraununum á Kyrrahafi í fyrra, sem ekki voru gefnar út fyrr en nú fyrir nokkrum vikum, og með tilliti til upplýsinga franska jafnaðarmannsins Jules Moch, sem hefur fengið aðgang að fyllstu upplýsingum um þessi efni, er það víst, að nú þegar eru til vetnissprengjur, eða a. m. k. hægt að gera þær, svo öflugar, að ein þeirra mundi nægja til þess að tortíma öllu lífi á Reykja- nesskaga, en gera allt Suðvesturland frá Snæfellsnesi til Víkur í Mýrdal óbyggi- legt um langan aldur. Jules Moch fullyrðir, að 10—12 slíkar sprengjur nægi til þess að leggja allt Frakkland í rústir. Að sömu niðurstöðu hafa enskir vís- indamenn og sérfræðingar komizt, að því er England snertir. Þar eru til vitnis ummæli ekki ómerkari manna en forseta brezka vísindafélagsins, dr. Adrians, og Nobelsverðlaunamannsins dr. Blacketts, sem ásamt fleirum hafa varað þjóð sína við hinni háskalegu aðstöðu, sem Bretland yrði í, ef til kjarnorkustyrj- aldar kæmi. „Aðstaða íslands, ef til kjarnorkustyrjaldar kæmi,“ er í stuttu máli sú, að vegna aðildar íslands að Atlanzhafsbandalaginu og vegna herstöðva Banda- ríkjanna hér skv. herverndarsamningnum frá 1951, er líklegast, ef ekki fullvíst í ljósi óvefengjanlegra upplýsinga, að ein vetnissprengja nægði til þess að binda endi á alla framtíðardrauma í'slenzkrar þjóðar. Ef íslendingar kjósa sér þá aðstöðu áfram, eftir að þeim hafa orðið ljós þau nýju viðhorf, sem skapazt hafa vegna gerbreyttrar hernaðaraðstöðu í heiminum fyrir tilkomu vetnissprengjunnar, þá jafngildir það vali sjálfsmorð- ingja. Á árunum 1949—1951, þegar íslendingar flæktust í neti Atlanzhafsbanda- lagsins og herstöðvasamningsins, voru slík vopn sem vetnissprengjan ekki til, 132
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.