Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Síða 24

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Síða 24
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR afla, sem ógna mannkyninu. Væri það víghreiður ekki hér á landi hefðu íslend- ingar flestum þjóðum fremur nokkra möguleika og jafnvel líkindi til þess, vegna legu landsins, að lifa af þau ragnarök vestrænnar menningar, sem ótak- mörkuð kjarnorkustyrjöld hlýtur að verða. 2. Ég tel það bæði nauðsynlegt og sjálfsagt. En eins og málin standa nú, virðist þurfa meira en lítið átak til þess að knýja fram viðhlítandi ráðstafanir í því efni. Meðan kenningin um, að vígbúnaður og söfnun kjarnorkuvopna sé bezta tryggingin fyrir friði í heiminum, er uppistaðan í áróðri voldugra ríkja og ríkjabandalaga, er við ramman reip að draga. Það er að vísu nokkuð fjarstæðukennt að tala um, að vekja þurfi vilja mannkynsins til að viðhalda lífi sínu. Sá vilji er til sem rík eðlishvöt með hverjum einstaklingi. En það verður að skapa rökstutt almenningsálit alls mannkyns, ef svo mætti að orði kveða. Það er eina aflið, sem stjórnmálamenn óttast. Heimsfriðarráðið hefur komizt nærri því, í fyrsta sinni í sögunni, að skapa slíkt almenningsálit um alla heimsbyggðina. 3. Ég mun hiklaust gera það. Þórbergur Þórðarson, rithöfundur: 1. Ef héðan yrði hafin hernaðarárás með kjarnorkuvopnum, má telja það efalaust, að sá, sem þeirri árás yrði beint að, myndi svara henni samstundis með svipuðum aðgerðum. Lýsingar sérfræðinga á eðli og eyðileggingarmætti kjarnorkuvopna (þar með taldar vetnissprengjur) og tilraunir þær, sem þegar hafa verið gerðar með þessum múgmorðstækjum, hafa sýnt okkur og sannað, að aðstaða íslands í kjarnorkustyrjöld myndi verða nokkurn veginn þessi: í fyrsta lagi: Þau ni)'ndu tortíma þegar í stað fjölda landsmanna og fjölda gripa og dauðra verðmæta. í öðru lagi: Mikinn hluta þeirra, sem eftir lifðu, myndu þau slá þjáningar- fullum geislasjúkdómum, er myndu draga svo og svo marga til dauða. í þriðja lagi: Svo og svo margir afkomendur þeirra, sem lifðu af slík ragna- rök, myndu fæðast fávitar og vanskapningar, ef til vill í margar kynslóðir. Tal um varnir í kjarnorkustyrjöld er ábyrgðarlaust þvaður. Þannig og engan veginn öðruvísi yrði aðstaða Islands í kjarnorkustyrjöld. 2. Af þessu hlýtur það að liggja hverjum andlega ósjúkum manni í augum 134
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.