Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Síða 28

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Síða 28
HALLDÓR KILJAN LAXNESS Yfirlýsing um kjarnorkuhernað Kjarnorkuvopn eru hættuleg mannkyninu að sama skapi sem þau eru til- tæk pólitískum glæframönnum er miða ráðagerðir sínar við „styrkleika- aðstöðu“ og hegða sér samkvæmt því. Sumir telja að aldrei muni koma til kjarnorkustríðs, vegna þess að engir stj órnmálamenn mundu þora að kasta vetnissprengju. Engu að síður er það staðreynd að stjórnmálamenn stórvelda, sem ráða örlögum þjóða, hafa lýst yfir því frammi fyrir gjörvöllum heimi að þeir ætli sér að kasta vetnissprengjum á bæi og stórborgir jarðarinnar, og tor- tíma með því mannlegu lífi án greinarmunar, ef og hvenær sem þeim þyki nauðsyn til bera. Slíkt framferði ætti vitanlega ekki mikið skylt við stríð. Kjarnorkuvopn eiga sér hvorki réttlætingu né tilgang sem styrjaldartæki; notk- un þeirra mundi eingöngu þýða tortímingu mannkynsins og gereyðingu lífs á jörðunni. En einmitt á sama hátt sem ekkert hefði komið sér betur en vetnis- sprengja fyrir Hitler í síðasta áfanga hans, eins er ekkert annað eins tilefni vonar og fagnaðar þessum óvættum stjórnmálanna sem Jeggja nótt við dag til að hrjá mannkynið í fréttastofufregnum sínum, blöðum og útvarpsstöðvum með hótunum um tortímingu. Allir vita að fáránlegar kenningar þeirra um deilu milli þjóða í austri og vestri eru tilbúningur, sem upphafsmennirnir hafa eingöngu að yfirskini rétt- lætingar á löngun sinni til að tortíma þjóðum sjálfra sín og annarra. Þjóðir veraldarinnar finna sjálfar að þær eru tengdar hverjar annarri böndum vin- áttu og bræðralags. í veröldinni er aðeins ein deila sem máli skiptir, deilan milli pólitískra glæframanna sem ráða yfir vetnissprengjum annars vegar, og þjóða jarðar- innar hins vegar. Þjóðum veraldar er lífsnauðsyn að sameinast og gera óvirka þessa illvígustu fulltrúa dauðans sem birzt hafa á yfirborði jarðar, allt frá því líf varð þar til. (Samið á ensku handa Heimsfriðarráðinu.) 138
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.