Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Side 31

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Side 31
HATTAR áhrif smekkur fólks við Miðjarðar- haf getur haft á lífskjör manna við ís- haf. Þarna stóðum við f j órir saman við borð í fiskgeymsluhúsi Jónasar Skál- ans úti á svonefndum Brimkolli nokkru utan við bæinn og skárum hnakkablóð frá því kl. 7 á morgnana til kl. 7 á kvöldin. Jónas þessi Skálan keypti allan fisk sem þarna barst á land, stór maður og feitur, forríkur og elskulegur og klappaði öllum mönnum á banakringluna, — en kem- ur að öðru leyti lítið við þessa sögu. Við hlið mér stóð þrítugur maður sem hét Eggert. Við Eggert vorum gamlir skipsfélagar, en nú var hann trúlofaður fallegri stúlku og alveg hættur til sjós. Hann spilaði á har- monikku á böllum og hafði fengið af því viðurnefnið hnykkur. Hann var áhugamaður um félagsmál og vildi láta taka tillit til sín á því sviði, enda hafði hann fyrstur manna sýnt þann stórhug að kaupa fimmfalda harmon- ikku í plássið; annars var tónlist- in honum heilagt mál og hann tal- aði aldrei um hana nema við hátíðleg tækifæri, hinsvegar talaði hann um allt annað milli himins og jarðar hve- nær sem tækifæri gafst. Hann var mjög hressilegur og sagði oft: „Mað- ur verður alltaf að vera í fullum húmmer og hafa energí á hlutunum." Hann hafði nefnilega verið tvo vetur í héraðsskólanum á Fljóti og sletti þessvegna mikið útlenzku. Hann kall- aði alla undarlega menn rarítöt, og þá menn sem honum þóttu vesælir úr hófi fram kallaði hann roðhænsn eða hamphausa. Hamphausar voru ennþá fyrirlitlegri en roðhænsn. Eggert var vinsæll maður í plássinu og sjaldan nefndur sínu skírnarnafni, heldur oft- ast bara: Hnykkurinn. A móti okkur við borðið stóðu On- undur klaki og Færeyingur sem hafði verið settur þarna í land úr skakskútu fyrir 30 árum með botnlangabólgu og ílenzt á staðnum. Önundur klaki hafði einu sinni lok- azt inni í frystiklefa og orðið að dúsa þar heila nótt. Hann var heljarmenni að burðum, en manna friðsamastur og hin bezta sál. Hann var mjög guð- rækinn, tilheyrði sértrúarflokki, og bað okkur á hverjum útborgunardegi að gefa nokkra aura til kristniboðs í Kína. Við gerðum þetta lengi vel, en svo lásum við einu sinni í bók eft- ir frægan mann hvað búið væri að kristna fáa Kínverja móts við þá sem ætti eftir að kristna, og þá fannst okk- ur þetta ekki lengur til neins og hætt- um að styrkja kristniboðið í Kína. En Önúndur hélt sem sagt áfram að safna, þrátt fyrir þetta, gekk á milli húsanna í bænum og tók fegins hendi hverjum eyri, því honum hafði verið sagt að verðlag í Kína væri svo miklu lægra en á Islandi. Aftur á móti skild- um við hinir aldrei hvaða úrslitaþýð- ingu það gat haft þar sem svona gríð- arlegur sægur var ennþá ókristnaður; 141

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.