Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Page 40

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Page 40
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR en fjallarefinn, sem er að vísu vitur skepna en ber þó varla svo mikið skyn á mannleg tignarmerki að hann kunni að gera greinarmun á þýðingu hatts og húfu. Og þegar við höfðum nú þennan snyrtilega hatt Jóns bónda til samanburðar við hatt Eyjólfs verk- stjóra, þá varð okkur allt í einu Ijóst, að hattur Eyjólfs var orðinn blettótt- ur og tekinn að grána af mikilli notk- un, meira að segja trosnaður á börð- unum og beyglaður og sat á höfði Eyj- ólfs eins og lítið soðpottskrifli á hvolfi og gerði hann í rauninni hlægilegan. Já, það var mikil stund í lífi okkar þegar Jón bóndi gekk í fyrsta sinn inn í fiskgeymsluhúsið. Stjarna þess hatts sem hingað til hafði kúgað okkur and- lega og líkamlega, innvortis jafnt sem útvortis, fór að lækka um leið og þessi nýi hattur birtist í ríki hans. Því að máttur hvers hatts er háður því skil- yrði að hann sé eina höfuðfatið sinn- ar tegundar á viðkomandi stað; strax og þangað kemur nýr hattur má sá gamli fara að ugga að sér, og ef nýi hatturinn er í þokkabót ennþá virðu- legri, ennþá svartari og ennþá harð- ari en sá gamli, kann að fara svo um síðir, að gamli hatturinn glati öllu sínu áhrifavaldi og falli í sömu ömur- legu niðurlæginguna eins og hverjir aðrir sixpensarar. Og hinn leyndi jarðhiti byltingar- innar fór smámsaman að ólga við yf- irborðið. Sérstaklega urðum við Eggert flj ótt fyrir miklum áhrifum af hatti Jóns bónda. Okkur sýndist bókstaflega lýsa af honum eins og geislabaug á krúnu heilags manns, þessi litli svarti harði hattur á höfði þessa litla skrítna sveitamanns var í okkar augum sjálf hin rísandi sól frelsisins, varpandi birtu, afli og yl inn í okkar kúguðu og kjarklausu sálir. Við töldum víst að Jón hefði komið hingað með hattinn í þeim tilgangi einum að bjóða Eyjólfi byrginn og gefa honum vísbendingu um að lægja seglin og láta af ofstopa sínum, og til þessa þurfti að dómi okkar, hversdagslegra húfumanna, hugrekki sem var ekkert minna en ofurmannlegt. Enda sáum við að Jón setti ekki upp vettlingana né batt á sig brigðið fyrr en klukkan var orð- in, og Eyjólfur lét það óátalið. Yfir- leitt virtist Eyjólfur vilja forðast það í lengstu lög að verða staðinn að því að hafa veitt þessum nýja manni minnstu eftirtekt. Og þetta varð til að auka enn meir aðdáun okkar á Jóni. Kúgarinn var þegar kominn á undan- hald fyrir honum. Jón mundi ekki hafa getað gefið okkur öllu ótvíræð- ar í skyn hvað hann hugðist hér fyrir, þó hann hefði gengið beint fyrir Eyj- ólf og sagt: „Hvað villt þú upp á dekk, vesæll maður með gamlan, trosnað- an, blettóttan og beyglaðan skrípa- hatt? Það er risin ný öld með nýjan hatt. Mitt fólk heimtar sinn rétt. Mitt 150

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.