Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Side 47

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Side 47
HATTAR um við frá, hvenær 'sem okkur var dá- lítið mál, og jafnvel oftar, og fórum einnig að því með sömu ró og ótta- leysi frjálsra manna. Eyjólfur var stunduin viðstaddur og horfði á þessa ögrunarfullu fyrirboða byltingarinn- ar, en hann sagði aldrei orð. Þó var hann nú farinn að vera oftar og leng- ur burtu en áður, og fól Sveini æ meir að líta eftir vinnunni. Við vorum farn- ir að sparka í Svein. Hvænær sem hann kom nærri okkur, spörkuðum við í hann. Þá hrökklaðist hann út í dyr og stóð þar nokkra stund og öskraði til okkar af máttlausri heift, en við hlóg- um hæðnislega. Það var orðið ein mesta skemmtun okkar að koma upp úr á þessum vesælingi. Síðan hvarf hann úr dyrunum, og við vissum að hann var farinn til Eyjólfs að klaga okkur. En Eyjólfur virtist alveg hafa snúið baki við þessum feita og auð- mjúka þjóni sínum, svo mikið er víst að eftirmál urðu aldrei nein. Hnútur- inn á svipunni var farinn að dingla, áhrifalaus með öllu, enda hafði svip- an sjálf hætt að smella. Onundur klaki hélt einnig áfram að vera virkur stríðsmaður frelsisins. Vegna þjónustu sinnar við Guð gat hann að vísu ekki stutt þann þátt upp- reisnarinnar að taka í nefið, en þeim mun skeleggar var hann við fram- kvæmd þess þáttarins sem heyrði und- ir þjónustuna við lögmál náttúrunn- ar, hann var farinn að skreppa frá 10 —15 sinnum á dag; það var eins og hann hygðist nú fá bættan að nokkru þann órétt og móðganir sem blaðra hans hafði hingað til mátt þola. En hvað þá um hina? Um Jón bónda þarf auðvitað ekki að tala. Að vísu tók hann ekki í nefið, og hefur að líkindum aldrei gert það, né heldur skrapp hann nokkurntíma frá, ennþá lét hann sitja við það eitt að láta á sig vettlingana og brigðið eftir að klukkan var orðin; en þetta afskiptaleysi hans varð aðeins til að staðfesta enn frekar fyrir okkur Egg- erti það álit sem við höfðum fengið á honum sem varkárum stj órnvitringi: hann vildi reyna ennþá betur hvern dug og framtak við gætum sýnt upp á eigin spýtur, áður en hann kæmi opin- berlega fram sem foringi okkar og léti til skarar skríða. Okkur fannst hattur Jóns vaxa að virðuleik því lengur sem við höfðum hann fyrir augunum, en að sama skapi varð minna úr hatti Eyjólfs verkstjóra. Návist Jóns og hatts hans varð okkur æ meiri sið- ferðilegur styrkur, og stundum stóð- um við lengi og horfðum hugfangnir á hann, og þegar Jón tók eftir því, brosti hann til okkar, og við hugsuð- um harla glaðir: „Sko, honum þykir við hara skrambi seigir.“ Þegar Jón brosti, varð hin stóra neðrivör hans ennþá pelíkanlegri en endranær, — en okkur Eggerti virtist hún vera í- mynd sannrar karlmennsku og ein- beitni. 157

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.