Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1955, Page 73
JOE HILL að gera. Atvinnuleysið var mikið og starfskjör ófaglærðra verkamanna venjulega mjög hrakleg. Hvar eða hvenær Joe Hill komst til stjórnmála- legs skilnings er ókunnugt. Stavis heldur að hann hafi verið með frá upphafi, annað hvort sem forgöngu- maður eða a. m. k. einn af fyrstu fé- lagsmönnunum, þegar verklýðssam- bandið Industrial Worlters of the World (IWW) stofnaði deild sína í San Pedro í Californíu um áramótin 1909—1910. í sænska tímaritinu Brand hefur ónefndur félagi Joe Hills birt endurminningu, skömmu eftir af- töku hans, um verkfall í vélsmiöju ár- ið 1909, þar sem Joe Hill kom fram sem reyndur forystumaður: „Hann hafði frétt um baráttu okkar. Hann skipulagöi hana. Hann greiddi úr öllu, svo þrautreyndur sem hann var í slík- um málum.“ Þetta er án efa rétt frá skýrt. Þegar Joe Hill varð frægur í einni svipan 1911 fyrir ljóð sitt um Casey Jones — the union scah (verk- fallsbrjóturinn Casey Jones), sem hann orti í tilefni af verkfallinu mikla við Suður-Kyrrahafsjárnbrautina og varð fljótlega mjög vinsæll verklýös- söngur um gjörvöll Bandaríkin, þá mun hann hafa verið oröinn sjálfstæð- ur og ábyrgur forystumaöur í IWW- hreyfingunni, sem um þær mundir var í örum vexti. Hún var að því leyti ólík verklýðssambandinu American Fede- ration of Lahor, sem aðeins var félags- skapur faglærðra verkamanna, að til- Joe Hill gangur'hennar var að sameina skipu- lega alla verkamenn, hvort sem þeir voru búnir sérkunnáttu eða ekki, og hvort sem laun þeirra voru lægri eða hærri. Þetta skipulag hefur verið kall- að syndikalistiskt. Sambandið varð þannig mjög ósamkynja þáttum slung- ið, og margir forystumenn þess, eins og t. d. Elizabeth Gurley Flynn urðu síðar félagar í Kommúnistaflokki Bandaríkjanna. Sú frægð, sem Joe Hill hlaut fyrir ljóðið um Casey Jones hefur ef til vill verið tilviljun að þakka. Talið er að hann hafi áður ort og lagsett vinsæla verklýðssöngva, sem hann stráði í kringum sig af miklu örlæti og náðu frægð sem alþýðusöngvar án höfund- 183

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.