Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Blaðsíða 22
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
að í margri kytru þar sem þessir menn sátu hafi ekki einusinni brunnið eldur,
svo að þeir gætu ornað sér á lopnum fíngrum í andvökunni. Samt tókst þeim
að skapa bókmentamál svo ágætlegt, að sá listrænn miðill mun torfundinn í
heimi, sem gefi rúm fleiri tilbreytíngum hvort heldur er í því sem kallað er
útsmogið ellegar hinu sem er kent til tíguleika. Og þeim tókst að semja á máli
þessu bækur, sem teljast til sígildra bókmenta heimsins. Þó að þessum mönnum
væri kanski stundum kalt á fíngrunum, þá lögðu þeir ekki frá sér pennann
meðan þeim var heitt uin hjartað.
Eg spurði mig þetta umrædda kvöld: hvað má frægð og frami veita skáldi?
Vissulega velsælu af því tagi sem fylgir hinum þétta leir. En ef íslenskt skáld
gleymir upphafi sínu í þjóðdjúpinu, þar sem sagan býr; ef hann missir sam-
band sitt og skyldu við það líf sem er aðþreingt, það líf sem hún amma mín
gamla kendi mér að búa öndvegi í huga mér — þá er frægð næsta lítils virði;
og svo það hamíngjulán sem hlýst af fé.
Yðar hátignir; herrar minir og frúr. Sá hlutur sem mér þykir mest um vert,
þeirra sem mér hafa að höndum borið um þessar mundir, það er að sænska
akademían skuli af hinu mikla áhrifavaldi sem henni er léð, hafa nefnt nafn
mitt í sambandi við hina ókunnu meistara fornsagnanna íslensku. Þær rök-
semdir, sem Sænska akademían hefur látið liggja að veitíngu hins mikla sóma
mér til handa, mun verða mér sjálfum ævilaung hvatníng og um leið fagnaðar-
efni þeirri þjóð, sem stendur að baki als sem einhvers kann að vera nýtt í
verkum mínum.
Fyrir þetta alt tjái ég nú Sænsku akademíunni þökk mína og virðíngu. Þó ég
sé sá sem í dag hef tekið við bókmentaverðlaununum úr hendi konúngs, þá
finsl mér verðlaun þessi hafi um leið verið veitt lærifeðrum mínum þeim er
leift hafa eftir sig bókmentalegan arf Islands.
12