Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Page 41

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Page 41
GÖMUL GREIN UM GAMLAN VIN Auðvitað gat pabbi ekki fyrr við snúizt daginn eftir en hann gerði ferð sína út á bæi og „iðraðist“. En þar var við góða um að eiga: Jón Sig- urðsson á Haukagili og sjálfan við- takanda böggulsins, Svövu dóttur hans, en Jón var uppeldisbróðir mömmu, — enda kom pabbi bæði með Númarímur til baka og fleira góðra bóka. Ég þarf ekki að taka fram, eftir það nú er skrifað, hve mjög bókelskur faðir minn var, og þær bækur, sem við synir hans eigum eftir hann, bera smekk hans ágætt vitni. Hann keypti mjög bækur eftir að efnahagur hans batnaði. Margs mætti ég minnast frá efna- hagslegum erfiðleikum föður míns við að framfleyta fjölskyldu sinni á lítilli og kostarýrri jörð, þó að vísast hafi þeir ekki verið meiri en víða gekk og gerðist í þann tíð. Þá var furðu stirt um að koma í viðunanlegt verð þvi af afurðum heimilisins, sem til mála kom sem innlegg í verzlanir. Smjörið, sem hægt var að draga saman, fór vægðar- laust í leigurnar, og varð nýmjólkur- neyzla okkar barnanna því tíðum minni en nú myndi þykja gott. En féð var aðallega selt á fæti og fóru menn frá kaupmannaverzlunum um á haust- um og keyptu. Mjög þótti það við brenna að þessir menn tækju misvel af bændum og gyldu hærra verð rík- um en fátækum. Er mér í grun að ekki hafi þar alltaf verið kaupmönnum sjálfum um að kenna, heldur hafi þar og komið til greina sú slóttuga hneigð undirtyllunnar að koma sér í mjúk hjá þeim sem betur máttu sín. Svo undarlegt sem það er, þá gerði fátækt- in suma menn grimma við þá sem voru þeim sjálfum ennþá umkomu- minni. Hitt voru stórtíðindi og hneykslun fullkomin, ef einhver skil- lítill þorði gagnvart fyrirmönnum það sem kallað var „að brúka kjaft“. Ég man að eitt haustið fékk pabbi orð frá „markaðshaldara“ nokkrum, en svo voru þessir sendimenn kaup- manna almennt kallaðir, að hafa til sölufé ákveðinn dag. Gerði pabbi það og kom maðurinn. Var um að ræða lömb og nokkrar veturgamlar kindur. Gaufaði nú markaðshaldarinn góða stund yfir fénu, þuklaði og vó í hönd- um sér. Réttist síðan upp, beit í skroið og nefndi verð. — Það veizt þú sjálf- ur að er of lítið, svaraði pabbi. Mað- urinn mótmælti því og gerði sig þegar reiðan, endaði ræðu sína með því að lýsa yfir að þetta væri rýrt fé. — Þú lýgur því, svaraði pabbi og tók nú að harðna sennan. Ég sá að handleggur- inn, sem hann studdi á jötubandið, titraði dálítið. Þá sté markaðshaldar- inn fram, hvessti augun á pabba og kvað það engu hlýða fyrir skulduga menn að segja sér fyrir um verð. — Þú veizt það, maður, að þú verður að borga fyrir áramót og ég tek féð fyrir það sem mér sýnist. 31
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.