Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Blaðsíða 63

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Blaðsíða 63
H ARMKVÆLASONURINN fagra Jósef, níu ára gamlan. Svein- inn elskaði hann nú hálfu meir og gaf svo örlögunum nýjan og háskalegan höggstað á sér. Það er efni til um- hugsunar, hvort sá, sem gefin er rík viðkvæmni, skeyti í rauninni hvorki um frelsi né næði vitandi vits, en gangi opnum sjónum út í voðann og óski einskis frekar en lifa undir eggj- um sverðsins í sífelldum kvíða. Aug- ljóst er, að svo fífldjarfur vilji er spunninn úr þáttum hinnar sælu við- kvæmni, því að hún er ekki til nema þar, sem lundin er fús til að bera mikl- ar þjáningar, og raunar hverjum manni skylt að vita, að engin óvar- færni er ástinni meiri. Sú mótsögn, er hér ræður í náttúrunni, er einmitt með þeim hætti, að það eru hinar meyru sálir, er kjósa þessa kosti, en eru alls ekki búnar orku til að bera það, sem þær færast í fang, — og hin- ir, sem alla hafa burðina til þess, láta sér ekki detta í hug að gefa höggstað á hjarta sínu, og verður svo ekkert að meini. Rakel hafði tvo um þrítugt, er hún ól Jósef í helgum þrautum. Hún var þrjátíu og sjö sumra, er Jakob rauf rykfallna slagbrandana og nam hana brott. Hún var rúmlega fertug þegar hún kenndi þess enn, að hún væri með barni — þetta er svo að skilja: það erum vér sem teljum árin. Það var ekki vandi hennar né hennar fólks að kasta tölu á árin. Hún hefði þurft að hugsa sig lengi um áður en hún gæti greint frá aldri sínum með nokkurri nákvæmni — sú spurning skipti yfir- leitt litlu máli. I austurheimi hafa menn ekki þann andvara á sér í tím- ans tölvísi, sem hinum reiknings- glögga vestræna manni þykir svo sjálfsagður hlutur. Þar er tíma og lífi leyft að rása að vild eða hyljast gleymsku og hvorugt er tamið við töl- ur né mælistiku aðsjállar húhyggju, og þegar spurt er mn aldur manns, getur svar þess, sem spurður er, hlaupið á áratugum, en spurningin þykir svo litlu máh skipta, að ósjald- an er svarað í fullkomnu kæruleysi: „Kannski fjörutíu ára eða sjötíu?“ — Jakob var einnig í miklum vafa um aldur sinn og þótti ekki tiltökumál. Að vísu höfðu sum ár ævi hans verið tölum talin, þau er hann dvaldi í landi Labans, sum ekki, auk þess vissi hann ekki aldur sinn þegar hann settist þar að og lét sig litlu varða. En svo heitt unni hann Rakel, svo kyrrstæð var nú- líðin í ástríkri lífssambúð þeirra, að hann gáði ekki hinna náttúrlegu breytinga, sem orðið höfðu á henni; því hvort sem tíminn var tölum talinn eður ei, þá hafði hann farið höndum um hina þokkasælu fögru Rakel, svo að hin frumvaxta ljúfa mær var nú orðin þroskuð kona. Fyrir augum hans var Rakel enn og jafnan brúður- in hjá brunninum, sú er hafði beðið hans árin sjö, sú er hann hafði kysst óþrevjutár af augum. Það var eins og hann liti hana jafnan með fjarhygð í 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.