Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Blaðsíða 29
HEIMSÓKN Á ÞORRA
dálítill pappírsmiði samanbrotinn og lúður, og hann fékk rithöfundinum mið-
ann. A miðanum stóð þetta sérkennilega orð: osteopoikilosis. Rithöfundurinn
Ias orðið einu sinni eða tvisvar hálfupphátt og skildi það ekki.
Er þetta nafnið yðar? spurði hann.
0 nei ekki er nú það. Þetta er nafnið á veikinni.
Hvaða veiki?
Maðurinn ræskti sig inní húsið hjá rithöfundinum, og það var auðséð að
hann átti eitthvað ósagt.
Ég hef heyrt sagt, sagði hann, að þér séuð veruleikaskáld. Svo mér datt í
hug hvort þér vilduð ekki kaupa ævisögu mína.
Til hvers? spurði rithöfundurinn.
Ég hefði hálfpartinn þurft að fá mér frakka. Ég er rétt nýkominn úr svoleiðis
húsi þar sem menn þurfa ekki frakka, en það er ekki komið nema frammá mið-
þorra svo ég get varla komist af yfirhafnarlaus úr því ég er kominn út.
Eruð þér með ævisöguna í vasanum? spurði rithöfundurinn.
Onei ekki er nú það, mér hefur aldrei unnist tími til að skrifa hana upp, en ef
þér viljið heyra hana og borga ögn fyrir hana, þá skal ég segja yður hana.
Æ hefur nokkuð komið fyrir yður sem gaman er að? sagði rithöfundurinn
og virti manninn fyrir sér heldur dauflega.
Velst hver á heldur, sagði maðurinn. Hvað borgið þér fyrir ævisögu með
leyfi ?
Æ hvur haldið þér vilji kaupa ævisögu góði maður!
Það kemur ekki til af góðu að ég er að bjóða ævisögu mína, sagði maður-
inn; það er af því ég á ekki neitt annað að láta, ég er búinn að láta alt annað.
Ég er dálítið illa staddur núna. Kötturinn minn drapst nefnilega í nótt. Þegar
ég kom í morgun úr húsinu sem ég var að tala um áðan og ætlaði inntil mín í
kjallarann þar sem ég fæ stundum að sofa hjá manni, þá lá afmánin svoma
einsog gaddstokkur á stéttinni.
Þér kaupið nú varla líf í frosinn kött með ævisögu yðar maður minn, sagði
rithöfundurinn.
Nei, sagði gesturinn, það er hverju orði sannara sem í bibblíunni stendur:
deyr fé.
Nú og hvað svo, spurði rithöfundurinn.
Ég þekki mann sem vill láta frakka fyrir einsog hundraðkall. Þér skuluð fá
alla ævisöguna, að minsta kosti frá því ég kom til hennar stjúpu minnar sálugu
og þess fólks.
Hér er eingin fjármálastofnun, sagði rithöfundurinn. Ég stunda ekki neinar
19