Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Page 30

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Page 30
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR lánveitíngar sé spekulasjónir yíirleitt. Og það er ekki hægt að halda dyrunum á hálfa gátt endalaust í þessu veðri. Jæa við sleppum frakkanum góði, sagði maðurinn og brosti; hann lét annan fótinn svo lítið bar á uppá þröskuldinn milli stafs og hurðar. En brennivín verður að vera, bætti hann við. Brennivín fáið þér ekki af mér. Ég drekk ekki, sagði rithöfundurinn. Ættum við þá ekki að segja sosum fimtíu krónur fyrir æviferilinn einsog hann leggur sig frá því ég var getinn í móðurkvið: það jafngildir hálfflösku. Ég get kanski fundið einhvern sem vill leggja í hálfflösku á móti. Rithöfundurinn sagði: Þó ég ætti miljón þá held ég æviferill yðar væri það síðasta sem ég mundi kaupa. Þér eruð aldeilis gersamlega á villigötum maður minn. Jæa svona er það, sagði maðurinn. En mér duttuð þér í hug af því þér eruð frægt veruleikaskáld í tukthúsinu; og af því kötturinn minn drapst í nótt; og af því ég seldi háskólanum úr mér beinin fyrir rúmum tíu árum, svo þeir eiga úr mér beinin í háskólanum. Sjáið þér ekki að það snjóar inn maður, sagði rithöfundurinn. Fyrirgefið þér, en ég veit hvað þér eruð mikið skáld og mér þykir leiðinlegt að ég hef aldrei getað óskað yður nægilega til hamíngju: hvað munduð þér segja ef ég slæi nú aftur af þessari upphæð sem ég nefndi áðan og við segðum bara einsog eitthvert smáræði fyrir neftóbaki ? Hm. Og þá kanski segði ég yður bara part; þá segði ég yður kanski bara af því hvað ég hef átt í miklu stríði með þennan bölvaðan kött; hana Rósettu. Já hún hét Rósetta. Það er útlent orð og þýðir slaufa. Ég skírði hana Rósettu af því ég hafði ekki tök á að binda á hana slaufu. Þér ætlið þó ekki að frysta mig í hel hérna í dyrunum líka, sagði rithöfund- urinn. Ég hef aldrei vitað kött sem verðskuldaði slaufu ef ekki sá köttur. Hún verð- skuldaði ekta silkislaufu og meira segja tvöfalda slaufu og jafnvel þrefalda slaufu ef þvílíkar slaufur væru til. Það hefur aldrei sést köttur með eins fallegt stýri hér á götunni. Þegar ég var búinn að leita að henni hálfar og heilar næt- urnar, og ég var kanski svolítið undir áhrifum, og þaráofan með heimsfrægan sjúkdóm í beinunum, og ég var kanski búinn að detta oní alla polla á götunni, og tvisvar í suma, og seinast skreið ég kanski inní kjallarann til mín án þess að hafa fundið helvítis köttinn; og nú legst ég kanski fyrir að sofa á gólfinu Iijá mér, og það er farið að grána á glugga, og veit ég ekki fyren einhver stiklar 20
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.