Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Blaðsíða 3
TÍMARIT ,8ARC des
MÁLS
OG MENNINGAR
Ritstjórar:
Kristinn E. Andrésson, Jakob Benediktsson
Utgefandi: Bókmenntafélagið Mál og menning
r
A aldar morgni
Eftir vísindasigra þessa árs stendur mannkynið á þröskuldi nýrrar aldar.
Áður liafa menn kannað jörðina, byggðir og óbyggðir, úthöf og ísbreiður, heim-
skautin til yztu miða, rannsakað djúp sjávarins, klifið hæstu tinda, lesið úr jarðlögum sögu
hnattar vors og lífvera, lýst inn í hugardjúp sjálfra vor, rannsakað mannslíkamann taug
fyrir taug, sigrazt á sjúkdómum einum af öðrum, varpað birtu á uppruna lífsins, á eðli og
takmörk hugsunarinnar, á söguþróun og lögmál þjóðfélagsins, reiknað út fjarlægðir milli
stjarna og sólkerfa, kannað öreindir efnisins og loks — sprengt efniskjarnann og leyst úr
læðingi þá orku sem gefur manninum áður ókunnugt vald yfir náttúrunni og sjálfs sín
takmörkunum: það vald sem skáld og galdramenn hefur löngum dreymt um.
En ekki fyrr en nú hafa vísindin sigrazt á rúmi og tíma og brotið sér leið út úr gufu-
hvolfi jarðar til frjálsra siglinga um himingeiminn. Fyrstu himintunglin gerð af manna-
höndum sem skotið var á loft í haust marka tímamót í allri sögu mannvísinda, bera boð um
nýja öld er mennirnir leggja í fyrsta sinn upp frá hnetti sínum í könnunarleiðangra út á
ómælisdjúp rúmsins í heimsóknir til annarra hnatta.
Þessir vísindasigrar hafa vakið undrun og fögnuð um allan heim, fyrst og fremst meðal
vfsindamanna, og brotið ímyndunaraflinu nýjar leiðir. Menn hafa í skyndingu horft upp
frá önnum sínum og striti, og í sjónhendingu séð lýsa inn á nýjar brautir. Vísindamenn
draga ekki í efa að innan tíðar hefjist siglingar til annarra hnatta. Menn og þjóðir hafa
allt í einu færzt nær hver öðrum, eygt sameiginlegt markmið og fundið að þeir eru skip-
verjar á sama fleyi — á frekar undarlegri siglingu. Einstaka stjórnmálamenn hafa reynd-
ar komizt úr jafnvægi út af því að það skyldu vera Sovétríkin sem komu tunglunum á
loft. Aðrir hafa skilið að bæði er táknrænt og eðlilegt að vísindamenn hins nýja heims,
TÍMARIT MÁLS OG MENNINCAR
193
13