Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Side 21
HALLDOR KILJAN LAXNESS
Amerískir endurfundir
San Francisco — Manila.
November.
ó ég væri hátt á þriðja ár í Norð-
urameríku í æsku, kyntist ég ekki
New York. Mér lék meiren lítil for-
vitni á að sjá aftur þetta land þar sem
ég eyddi svo mörgum skemtilegum
æskudögum, og þá ekki síður þessa
borg, New York, sem ég hafði aldrei
kynst. Aðfinslur manna heinast að
ólíkum hlutum eftir æviskeiðum. Eg
geri ráð fyrir að hefði ég geingið
undir skýakljúfum Nýu Jórvíkur í
æsku, mundi ég hafa fundið að þess-
um byggíngum þángað til þar hefði
ekki staðið steinn yfir steini. Ég geri
ekki heldur ráð fyrir að skýakljúfar
verði taldir byggíngarlist æskumanna.
Þegar mér varð geingið útúr Bar-
clayhóteli morguninn eftir að ég kom,
og eftir Park Avenue í áttina til Cen-
tral Parks og til baka eftir Fimta
Avenue, þá blasti við mér byggíngar-
list sem ekki aðeins rekur mann í
rogastans formálalaust, heldur er
óefað rökrétt jartein þeirra þjóðfé-
lagslegra máttarvalda sem einna
sterkust hafa verið í veröldinni um
skeið. New York, og þó sérstaklega
Manhattaney þar sem skýkljúfarnir
standa, er bústaður auðfélaganna
miklu. Landþraung eyarinnar hefur
að öðru leyti valdið því að þessi
mammonsmusteri varð að reisa beint
upp í skýin. Strætin hér minna á
óhlutkenda mynd í flatarmálsstíl þar
sem sérhver lína er fordæmd nema
hin stysta milli tveggja púnkta. Skynj-
un sem tamin er við formveröld nú-
tímans og hið óhlutkenda en vægðar-
lausa lífsstarf nútímaþjóðfélags hlýt-
ur að hrífast af þessum uppáviðleit-
andi línum og uppmjókkandi flötum.
Stál og gler, alúmíníum og gler, kopar
og gler, auk margvíslegra léttra áferð-
arfallegra gerviefna, þar sem einfald-
leiki er höfuðatriði og sérhver flötur
verður hlægilegur um leið og farið er
að skreyta hann — þessar smíðar eru
sakir stórhreinlegs einfaldleika síns
andstæða við alla tilgerð. Fátt er öllu
fjær þeim hugsanagraut sem stjórnar-
byggíngar og önnur opinber viðhafn-
arhús báru vott fyrir hundrað árum,
211