Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Blaðsíða 32
TIMARIT MALS OG MENNINGAR
allt frelsi. Það er líka til frelsi, sem
heitir frelsi frá atvinnuleysi, frelsi frá
gengisfellingum, frelsi frá kynþátta-
kúgun, frelsi frá því að vera útilokað-
ur frá að geta notið hæfileika sinna.
Það eru þessar tegundir frelsis, sem
borgarar Ráðstjórnarríkjanna hafa
húið við í fullum mæli, en þegnar
auðvaldslandanna farið á mis við allt
til þessa. Rifrildisfrelsið er ekki eins
mikil lífsnauðsyn í samvirku þjóðfé-
lagi eins og í þeim þjóðfélögum, þar
sem stétt stendur gegn stétt og hver
kjafturinn er uppi á móti öðrum til
þess að réttlæta sjálfan sig.
Andstæðingar Ráðstjórnarríkjanna
vilja helzt ekkert sjá austur þar annað
en það, sem þeim hefur áorðið til
vansa. Við slíkum fréttum gína þeir
eins og óviti við ullabjakki.
Það er vitanlegt, að í þeim risa-
átökum, sem þar hafa farið fram, og
það í fyrsta sinn í þessum heimi, þar
hefur margt gengið öðruvísi en æski-
legt hefði verið. Þar hafa orðið margs
konar frumbýlingsafglöp og jafnvel
verið framdir glæpir gegn mönnum,
og líkt mundi farið hafa í öllum lönd-
um í svipuðum kringumstæðum,
nema þar sem alfullkomnir menn
hefðu ráðið ríkjum. En hversu óend-
anlega smáskorið er það ekki að ein-
angra hugann við þessa hluti, en láta
allt hið mikilfenglega fram hjá sér
fara, það að þarna hefur verið og er í
sköpun nýr heimur. ný tilvera, sem
þegar er tekin að valda aldahvörfum i
lífi alls mannkyns, betri heimur, vitr-
ari tilvera en þekkzt hefur áður á
vorri jörð.
Hvernig mundi nú mannfélagið líla
út í dag, ef byltingin í Rússlandi hefði
ekki orðið?
Þeirri spurningu er erfitt að svara.
Þó eru þar nokkur meginatriði aug-
Ijós.
Kapítalisminn hefði haldið áfram
drottnun sinni yfir öllum þjóðum í
sívaxandi kapphlaupum um markaði
og landgæði og landvinninga, sívax-
andi kreppum og sílækkandi upp-
gangstímabilum. Verkalýður allur
væri risminni og hefði sljórri vitund
utn gildi sitt. Enginn manndómur
hefði verið til að rísa gegn nýlendu-
kúguninni. Asíuríkin, sem nú hafa
rifið sig undan nýlenduránskapnum,
svo sem Indland, Indónesía, Vietnam,
Norður-Kórea og Kína væru ennþá
undir járnhæl nýlenduræningjanna,
Kína og Rússlandi máski skipt upp í
arðránssvæði milli höfuðræningj-
anna. Það hefði engin frelsisbarátta
átt sér stað í Vestur-Asíuríkjunum,
engin á Seylon, engin á Kýpur, engin
í Afríkulöndum og engin í alþýðulýð-
veldum Austur-Evrópu. Frelsisbarátta
allra þessara landa var innblásin af
rússnesku byltingunni. Það var hún,
sem vakti þessar þjóðir til meðvitund-
ar um verðleika þeirra og örvaði þær
til uppreisnar gegn nýlenduniðurlæg-
ingunni. Án rússnesku byltingarinnar
hefði járnköld loppa heimskapítal-
222