Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Qupperneq 81
STEFAN ZWEIG
Bókin - inngönguhlið heimsins
0** ll hreyfing á jörðu hér byggist í
meginatriðum á tveim uppfinn-
ingum mannlegs anda: hreyfingin í
rúmi á uppfinningu veltandi hjólsins,
sem þeytist heitt um öxul sinn; hin
andlega hreyfing á uppgötvun skrift-
arinnar. Sá óþekkti maður, sem ein-
hvers staðar og einhvern tíma beygði
fyrstur manna hinn harða við í hjól-
hring, hefur kennt gervöllu mannkyni
að sigrast á fjarlægðinni milli landa
og þjóða. Með vagninum skapaðist
möguleiki á sambandi, flutningur á
vörum, ferðalög, er færa nýja þekk-
ingu, yfirunninn er takmörkunarvilji
náttúrunnar, er ákvað einstökum teg-
undum jarðargróða, málmum, stein-
um, afurðum þröng, loftslagsbundin
heimkynni. Hvert land lifir ekki leng-
ur eitt út af fyrir sig, heldur í tengsl-
um við allan heiminn. Morgunlöndin
og lönd sólarlagsins, suðrið og norðr-
ið, austrið og vestrið voru færð ná-
lægt hvert öðru með þessu nýupp-
hugsaða farartæki. Alveg eins og
hjólið hefur í æ fullkomnara tækni-
formi, þar sem það veltur undir eim-
vagninum, fleygir áfram bifreiðinni,
snarsnýst í loftskrúfunni, yfirunnið
þyngdarafl rúmsins, þannig hefur
skriftin, sem einnig hefur löngu þró-
azt frá skrá og blaði í bók, rofið hina
örlagaríku reynslueinangrun jarð-
neskrar einstaklingssálar: vegna bók-
arinnar er enginn framar algerlega
innilokaður og einangraður innan
síns eigin sjónarsviðs, heldur getur
hver og einn öðlazt hlutdeild í því,
sem gerzt hefur og er að gerast, hlut-
deild í öllu því, sem gervallt mannkyn-
ið hefur hugsað og reynt. Á vorum
dögum byggist öll eða nær öll andleg
hreyfing vors andlega heims á bók-
inni, og hinir sameiginlegu lífshættir
ofar efnislegum hlutum, kallaðir
menning, væru óhugsandi án hennar.
Þetta vald bókarinnar í einstaklings-
lífi voru, vald, er víkkar úr vitundar-
svið sálar vorrar, byggir upp vorn
persónulega heim, er oss í rauninni
oftast nær hulið, aðeins einstöku sinn-
um, nær alltaf á kyrrlátum tómstund-
um, gerum vér oss grein fyrir því.
Því að bókin er löngu orðinn sjálf-
271