Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Side 30
TIMARIT MALS OG MENNINGAR
árið 1920. Og um rússnesku þjóðina
sagði Wells, að hana skorti alla ný-
sköpunarhæfileika, og rökdeilur væri
það eina, sem rússneskum mennta-
mönnum léti vel.
Þá talaði margur af sér. Og þeir
hafa lítið lært síðan.
Þegar Stalín dó, liéldu margir og
vonuðu, að nú væri allt búið með
sósíalismann í Rússlandi. Og jafnvel
í hvert sinn, sem skipt hefur verið um
ráðherra eða herforingi hefur verið
hækkaður eða lækkaður í tign, hafa
menn spurt, alltaf með kindarsvipinn
frá byltingarárunum á andlitinu:
„Hvað er nú að gerast í Rússlandi?
Eru þeir nú ekki að yfirgefa sósíal-
ismann?“
Þegar nazistar gerðu innrásina í
Rússland, þótti mörgum alveg víst, að
nú mundu Ráðstjórnarríkin loga öll í
innanlandsuppreisnum og þjóðir
þeirra mundu hrinda af sér oki inn-
lendu kúgaranna. Svo fundu menn
náttúrlega skýringu á því, að þetta
varð ekki: Nazistar komu svo klaufa-
lega fram við fólkið. Ef þeir liefðu
sýnt svolítið meiri lempni, þá hefði
spáin rætzt.
Og þegar Krústjoff hafði haldið
sína hrollvekjandi ræðu á 20. þingi
kommúnistaflokksins, þá sá margur
bjarma fyrir fögrum auðvaldsdegi
yfir Ráðstjórnarríkjunum.
Þessir spádómar hafa allir haft að-
eins einn galla, og ef þeir hefðu ekki
haft hann, þá hefðu þeir verið góðir
spádómar. En gallinn er sá, að enginn
þeirra hefur komið fram.
Rússar hafa komizt fram úr öllum
þessum erfiðleikum og sigrazt á áföll-
unum. Með hverri nýrri fimm ára
áætlun sækja þeir æ lengra fram til
kommúnistískra þjóðfélagshátta, hins
stéttlausa þjóðskipulags allsnægta og
bræðralags. Iðnaður þessa „frum-
stæða bændalýðs“ hefur þrítugfaldazt
síðan árið 1913. Þjóðartekjurnar
hafa nítjánfaldazt, og meira en þre-
faldazt síðan 1940, og á árunum 1960
til 1961 ætla þeir sér að verða búnir
að ná Bandaríkjum Norður-Ameríku
í framleiðslu landbúnaðarafurða á
mann. Og á það mætti kannski drepa
sem dæmi um þá leikni, sem þessir
„sveitamenn“ eru búnir að ná í tækni,
að þeir hafa orðið fyrstir allra þjóða
að gera eldflaugar, sem draga megin-
landa milli. Þeir hafa ennfremur orð-
ið fyrstir allra þjóða að smíða þrýsti-
loftsflugvélar, nothæfar til mannflutn-
inga. Og á meðan eldflaugar Banda-
ríkjanna eru að detta andvana til
jarðar hver á fætur annarri, skjóta
þeir á loft með vísindalegri nákvæmni
tveimur gervihnöttum til vísindarann-
sókna úti í himingeimnum. Það afrek
hefur orðið svo yfirþyrmandi um
heim allan, að óráði hefur slegið á
sumt mannfólkið. Bandaríkjamenn
heimta alþjóðaráðstefnu um eignar-
rétt á tunglinu. Dýraverndunarfélag
Bretlands biður um ldjóða bænar-
220