Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Síða 74

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Síða 74
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ekki aðeins samtímamenn, heldur einnig sömu lífsskoðunar, sem við getum skilgreint sem samruna mið- aldatrúarhyggju og upprennandi hú- maniskrar gagnrýni. Hversu ólíkir eru samt þessir þrír meistarar, hinar mildu Maríumyndir Angelicos ólíkar blóðríkum konumyndum Masaccios eða trylltum hestamönnum Ucellos! Er Pétur jyrsti eftir Aleksei Tol- stoj líkur Kjúklja eftir Tynjanov? Eða er ljóðlist Tvardovsksís lík skáld- skap Martynovs? Þó eru þau öll verk sósíaliskrar raunhyggju enn í dag. Virðing fyrir lesendum Sumir vestrænir rithöfundar segja að hlutdrægni sé helzti galli sovézkra bókmennta. Ég veit ekki hvort þessi ásökun er frekar sprottin af heimsku eða hræsni. Hlutdrægni er merki um ástríðu og ástríða hefur alltaf lifað í sannri list. Divina Commedia eftir Dante eða Rautt og svart (Lucien Leuwen) eftir Stendhal eru ekki að- eins hlutdrægar, heldur blása þær í glæður pólitískrar baráttu, og hafa þó staðizt tímans tönn. Listamaður sem elskar söguhetjur sínar og er trúr þeirri hugsjón sem andinn veitti hon- um, er alltaf hlutdrægur. Orðtakið „hrein list“ felur einnig í sér sína eig- in hlutdrægni. Það er ekki hlut- drægni sem rýrir gildi sumra sovézkra listaverka, heldur aðeins kuldi, skortur á innblæstri, vanmat á mannlegum tilfinningum og lögmál- um listar. Dæmisagan er þroskað form bók- mennta, og dæmisögur flytja vitan- lega oft siðferðisboðskap. Samt er ekki unnt að rita smásögur og leikrit á þann hátt. Þegar svo er, þá sýnir það lítilsvirðingu á lesandanum, ótta i við að tilgangur verksins kunni að fara fram hjá honum. Dæmisögur höfða meir til barna en fullorðinna. Margar af bókum okkar hafa verið ritaðar með þá föstu sannfæringu að lesendur væru börn. Að sumu leyti er þetta gagnrýnend- um að kenna, sem fylgjast ekki með bókmenntum og — sem er enn verra — ekki með lífinu heldur. Sumir gagnrýnendur hafa hinar barnalegustu hugmyndir um áhrif skáldskapar. Þeir halda að ef sýnd er söguhetja sem sé fyrirmyndarþegn samfélagsins, muni allir líkja eftir honum, og ef sýndur sé þorpari, þá muni allir þorpararnir (nema kannski þeir forhertustu) sjá að sér. Það er varla eyðandi orðum að þvílíkum gagnrýnendum. Maður vildi helzt segja: „Rís upp frá skrifborði þínu, far út og lif með lifandi fólki. Þú ert ekki að skrifa fyrir ellefu ára krakka. Lesendur þínir eru tilfinninganæmt fullorðið fólk, borgarar þroskaðs þjóðfélags, sem vinna, deila, þjást og gleðjast.“ Gagnrýni þessarar tegundar skipt- ir söguhetjum skáldsagna í tvennt: 264
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.