Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Page 105
EINMANA MAÐUR?
Chaplín-fjölskyldan settist að á Savoy-
hótelinu á Strand. Klukkan 12 á raiðnætti
uppljómaðist framhlið gistihússins. Bíl-
stjórar komu í strætisvögnum og leiguhíl-
um og beindu ljóskösturum sínum að hús-
inu þar sem vinur þeirra bjó. Dögum saman
hnappaðist mannfjöldinn fyrir utan gisti-
húsið. Allir vonuðust eftir að fá að sjá
hann. Stöku sinnum tókst Chaplín að kom-
ast út án þess að eftir honum væri tekið.
En þegar er það fréttist að liann væri kom-
inn aftur hrópaði mannfjöldinn: „Við vilj-
um sjá Charlie!"
Með einni eða tveimur undantekningum
höfðu öll brezku blöðin, einnig þau íhalds-
sömustu, stutt Chaplín gegn Mac Granery,
„sem beið með aðgerðir sínar þar til and-
stæðingurinn hafði snúið við honum baki“.
Manchester Guardian skrifaði: „Ef til vill
er Chaplín eini maðurinn, sem alþýða
manna þekkir hvar sem er í veröldinni, eini
maðurinn sem allir minnast með þakklátum
huga.“ Daily Mail birti teikningu, þar sem
sjá mátti sfgildan baksvipinn á Chaplín, er
Iiann gengur út í fjarskann. Hann hafði ver-
ið rekinn útúr glæsilegu gistihúsi af rudda-
legum dyraverði með andlitsdrætti Sáins
frænda.
Þessa dagana var tekin ljósmynd sem nú
stendur á skrifhorðinu mínu. Hún var tekin
í Southhampton og sýnir Chaplín sem ei
allur eitt bros. Hann er að skrifa nafnið sitt
í safnarabækur og styðst við hafnarverka-
mann, skarpleitan mann með hreykið blik
f angum.
M. K. þýddi.
295