Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1967, Side 87

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1967, Side 87
Eros-fjandsamlegu og evrópsku annarsveg- ar og þeirrar Eros-dýrkandi og austurlenzku hinsvegar, stendur Poul. Grundvallarhugs- un hókarinnar er að hluta endurtekning á því vandamáli sem fyrir er tekið í „Fir- klang i Lund“, en að undanskilinni til- rauna-afstöðu þeirrar skáldsögu. Tilrauna þeirra með skáldsöguformið, sem einkenna hinar nýju bækur Leifs Christensens og yfirleitt hafa verið greini- legar í dönskum prósa síðari árin, verður minna vart í skáldsögum Klaus Rifbjergs og Leifs Panduros. Prósastíll þeirra er oft- ast raunsær, að því leyti sem hann snertir raunveruleika og veruleikalýsingar ein- stakrar persónu, sem á hinn bóginn getur verið með ólíkindum. Sagan er nær alltaf sögð af sjálfri aðalsöguhetjunni, venju- legast í formi eintals sálarinnar eða ein- hverskonar dagbókarþátta. Þar með á- kvarðast stíll og skoðun af söguhetjunni sjálfri, og höfundurinn sniðgengur vanda- málið varðandi sjónarhorn þess er skýrir frá. Allar sögur Leijs Panduros að þeirri fyrstu og síðustu undanteknum eru fyrstu- persónufrásagnir, og vandamál það sem er hinn endurtekni meginþráður þessara bóka er samsemdarvandamálið, vandamál sjálfs- ins, að kynnast sjálfum sér og takast á hendur ábyrgð eigin lífs. Síendurvakin manngerð þessara sagna er mannveran sem aðlagast illa, og dvelst í taugahæli eða fangelsi. Þessum sjúklingum, sem svo virð- ast vera, er að sjálfsögðu lýst sem heil- hrigðum — þar sem það eru þeir sjálfir sem segja söguna — en andspænis þeiin stendur hið heilbrigða þjóðfélag, sem svo virðist vera, og fulltrúar þess eru hinir einkennisklæddu, læknirinn, varðmaðurinn, lögregluþjónninn, — sem lýst er sem óheil- brigðum. Árekstur þessara heima er dæmi um innri átök milli hins sjálfkvæma og hvatræna hjá aðalpersónunum annarsveg- Nýjar danskar bókmenntir ar og kröfu vestræns þjóðfélags um aga, samræmi og framlak hinsvegar. Átök þessi eru dapurleg, því að þau leiða einatt til andlegs hruns aðalsöguhetjunnar, en þessu er lýst með gamansemi sem jaðrar við að vera afkáraleg. Síðasta skáldsaga Panduros, Vejen til Jylland (Gyldendal, 1966), er hliðarspor á þessari meginleið í verkum höfundarins. Þetta er lítil skemmtileg ádeilusaga um dansk-amerískan milljónamæring, sem á- kveður að sjá aftur gamla landið áður en hann geispi golunni, en það reynist þá hafa breytzt sárgrætilega mikið frá því hann var í æsku. Eftir glæsilega háðsádeilu á opin- berar heimsóknir frægra manna með skara diplómata, öryggislögreglu og blaðamanna á vettvangi, þróast frásagan á þann hátt sem einkennandi er fyrir Panduro. Gamli maðurinn laumast burt með sveinstaula, sem flúið hefur af barnaheimili, og fót- gangandi — á flótta undan hinum einkenn- isklæddu persónum sögunnar — leggja þeir af stað til Jótlands, sem verður hlut- kennd ímynd landsins týnda. Þannig er einnig þessi skáldsaga tjáning á átökunum milli þjóðfélagsins og einstaklingsins. En öllu öðru fremur er bókin skemmtileg. Panduro er fyndnasti höfundur í Dan- mörku. Það er engin tilviljun, að minnzt er á Klaus Rifbjerg þrisvar eða fjórum sinnum í þessu stutta yfirliti. Hann er framámað- ur í dönsku menningarlífi og jafnvel fremstur meðal yngri rithöfunda. Hann gat sér fyrst orð sem ljóðskáld, en með feikn- legum dugnaði og iðni hefur hann lagt gjörva hönd á svotil allar tegundir bók- mennta. Þar að auki hefur hann, ásamt leikstjóranum Palle Kjærulff-Schmidt, gert nokkrar kvikmyndir, sem hafa endurnýjað danska kvikmyndalist (íslendingar eiga þær enn til góða), og sem gagnrýnandi hefur hann haft mikla þýðingu vegna 181
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.