Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1967, Side 97

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1967, Side 97
með í heimspekifræðum jafnt sem annarri mennt, og sé því tími til kominn, að við fáurn að kynnast þessum nágranna okkar, sem sagður er hvorki meira né minna en faðir að vissri heimspekistefnu samtímans. En það væri ekki réttlátt gagnvart Þor- steini Gylfasyni að bendla hann við neitt þess konar menningarhrölt, því hann lætur ótvírætt í það skína í formála, að honum sé það lítið eftirsóknareíni „að tolla í tízkunni", og hann gefur þeim „tauga- veikluðu hópsálum“ á baukinn, sem mis- nota rit meistarans á þann hátt að hyggja á þeim einhverjar nýtízkulegar stefnur eða -isma, hvað þá að draga af þeim heims- sögulegar ályktanir; hann vill í alla staði vera sá þögli og dyggi vitorðsmaður, sem sannur lesari Kierkegaards á að vera, og það leynir sér ekki, að erfiði hans og ómak við þýðinguna er unnið af aðdáun og hollustu við meistarann, ætlun hans er ekki að gefa íslenzkum lesendum menningar- sögulega lexíu, heldur að kippa lesand- anum í anda Kierkegaards burt úr erli ytri hluta, og skilja hann einan eftir í sínu eigin lífi gagnvart þeirri endurtekningu, sem er hans. Enda er það sízt til þess fallið að korna til móts við þá, sem á hægan máta vildu tileinka sér hugmyndir eða hugtök Kierke- gaards, að þýðarinn hefur endilega valið úr ritsafni Kierkegaards hókina Endur- tekningin, því hún má teljast persónuleg- asta rit Kierkegaards, og Kierkegaard læt- ur í það skína sjálfur, að hann hafi farið að dæmi Clementis frá Alexandríu, sem kvaðst skrifa rit sín þannig, að trúvilling- ar geti ekki skilið þau, og einhvers staðar er talað um að bókin sé „en hemmelig Meddelelse" eður heimulleg orðsending til vissrar persónu. Það lítur því helzt út fyrir að hér sé mönnum gerður óþarfa krókur að speki Kierkegaards, þar sem þeim sé gert að skyggnast inn í hluti, sem fræði- Umsagnir um bœkur mönnum eða ævisöguriturum ættu einum að koma við og snerta meira þróunarsögu hugtakanna hjá K. en að draga megi af skýran lærdóm, en á það er þó rétt að benda í þessu sambandi, að hjá Kierke- gaard verða líf og kenning ekki svo hæg- lega aðskilin, ]íf hans má segja að hafi verið allt í þágu hugmyndanna, og hann hefur ekki á boðstólum neina kenningu, sem ekki á sér rót í lífi hans sjálfs. Hitt er svo annað mál, að ekki er víst að margir lesendur láti heillast af því, sem á að vera undirstaða þessarar bókar, og hætt við að sagan, sem að baki liggur, snerti þá lílt og þeir láti sig litlu skipta, hvemig fer fyrir söguhetjunni að lokum, því þeir hafa hana grunaða um að hafa allan tímann meira verið að experimentera með eigin hugsanir og snúizt í kringum sjálfa sig en að hafa borizt í hafróti lífsins og tilfinning- anna. Það sem máli skiptir hér er því ekki reynsla hiifundarins sem slík, heldur þær hugsanir eða hugmyndir, sem hann lætur þróast samhliða henni og prófar á. Það sem er í rauninni að gerast í þessu riti er það, að sú hegelska sameining og sætt hins almenna og borgaralega annars vegar og trúarlega hinsvegar, sem Kierke- gaard lætur Vilhjálm assesor vera mál- svara fyrir í seinna bindi Annaðhvort — eða (ekki Annarshvors — eða eins og stundum hjá Þ. G.), er að bresta og Kierkegaard er á leið til að skilja hið trúarlega nýjum og strangari skilningi. I þeim ritum, sem hann semur um þessar mundir (1843), en það eru Uggur og ótti og Endurtekningin, er hið trúarlega séð í ljósi frásagnanna um fórn Abrahams og rnissi Jobs, og þannig verða til hugtök eins og „teleologisk Suspension af det Ethiske" og „Bevægelsen i Kraft af det Absurde“ í fyrra ritinu en „Gjentagelsen" eða endurtekningin í því síðara, en í báð- um lætur hinn einstaki aff baki effa kemst 191
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.