Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Síða 7

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Síða 7
Hönnun na jnkunnra byggtSarlaga hönnunar sérfræðinga í opinberri þjónustu. Héraðsbúar hönnuðu það sjálfir í krafti þess lærdóms, sem þeim veitti reynsla margra alda erfiðrar lífsbar- áttu, fyrst fyrir líftórunni í hennar frumstæðustu mynd og síðar æ meir fyrir þæginda- og menningarríku lífi. Kaupfélagið er sameiginleg geta Austur- Skaftfellinga til meiri háttar framkvæmda þeim til hagsbóta. Það tekur við sparifé þeirra til ávöxtunar, og það fá þeir aftur og meira til, þegar mest á ríður, annars eru aurarnir þeirra í þjónustu sameiginlegra átaka eða ein- staklinga, sem meir þurfa á þeim að halda þá og þá stundina. Það sem á vantar, að Kaupfélagið geti veitt fé til aðkallandi verkefna, fær það í ein- hverri bankahöllinni í öðru héraði, því að það vita allir, að það litla félag reisir sér ekki hurðarás um öxl, og það hefur ekki lagt í vana sinn að gefa út ávísanir, sem engin innstæða er fyrir. Til Kaupfélagsins fara héraðsbúar með vandamál sín stór og smá. Og það varð einingartákn þeirra svo til sjávar sem til sveita. Samtvinnan þessara tveggja bjargræðisþátta hafði um allar aldir verið haldreipið í lífsstríði kynslóðanna. Kaupfélagið varð höf- uðstoðin eignalausum fiskimönnum, bæði með lánum úr mörgum sjóðum sínum og útvegunum úr bankahöllum í fjarlægum héruðum. Og þannig er upp kominn sá sjávarútvegur ásamt vinnslu sj ávaraflans, sem aldrei kemst í dálka blaða eða aðrar fréttalindir samfélagsins öðruvísi en með björtu yfirbragði, hvers konar kólguklakkar og dimmviðri sem grúfa yfir fréttum af sams konar starfrækslu í öðrum héruðum landsins. 5. Og þá er næst að snúa sér að því, hvar í muni liggja leyndardómur þess- arar farsælu afkomu. Eru mið svona miklu betri hér en alls staðar annars staðar? Eru gæði fisksins meiri í bugtum Lóns og Mýra en í öðrum sjóum við strendur landsins? Er aðstaða hér sérstaklega ákjósanleg til að komast á sjóinn? Eru Hornfirðingar meiri aflaklær en allir aðrir íslenzkir sjómenn, sem þó eru upp til hópa mestu aflaklær í heimi? Þessu er til að svara í fyrsta lagi, að skilyrði til að komast á miðin eru í lakara lagi, að vísu er jafnaðarlega stutt að fara, en flest myndu þau fiski- þorpin á Austfjörðum vilja borga það með nokkurra mílna siglingu að vera laus við þann þröskuld, sem Hornafjarðarós getur verið, og langt er til næstu hafna, ef Ósinn bannar inngöngu, þegar komið er úr veiðiför. En það hygg ég, að fiskur sé nokkuð árviss og um ýmsar tegundir að ræða, sem henta ýmsum árstímum. Og ekki dreg ég í efa, að góðir sjómenn muni 101
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.