Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Blaðsíða 26
Tímarit Máls og mcnningar
Það er fjars'kalega fínt fólk í Suðurgötunni. ÞaS eru dómkirkjuprestar,
stórkaupmenn, prókonsúlar, pastoremerítusar, kírúrgar, bolsivíkkar, general-
konsúlar, rjúpnaskyttur, Faðir andanna líka, og bæjarfógetar.
Þá var enginn skortur á þokkadísum, Ásum, Bimum og Onnulísum, Ella
bæj., Esther og Uppsalakata, svo nokkrar séu nefndar.
Á horninu er fullt af majórum, lautinöntum og adjútöntum, það held ég,
Sesselja, Þóroddur póstur, Herdís, sem á púturnar sem mamma kaupir eggin
úr, Oddur í Iðnó, Jensína og Jón kadett. Og miklu fleiri, ég man þá kannski
seinna. „Kom, kom, kom í hænsnaberinn! kom sá ...“ Það var her í gamla
daga!
Ósköp er eitthvað dommaralegt héma. Hvar eru Hjaltesteðsstrákarnir?
Yið skulum koma út í Tjamargötu, það er þar sem höfðingjamir eru,
par excellence!
Þarna eru tveir slánar, er það ekki sem mér sýnist, er það ekki hann
Palli bisp og hann Agnar í Klemmu. Hvað eru þeir að snópa þarna upp
hjá Brunnhúsum? Nú er eitthvert prakkarastrikið í bígerð, það er ég viss
um.
Sjáið þið litla pinnann þama með flugdrekann, sá er vitlaus, í blæjalogni!
Nononono! er það ekki hann Pétur litli, sjálfur ráðherrasonurinn, leyfist
kettinum .. . en flugdrekinn fer nú ekki upp samt.
Einhverjir kallar eru þama fyrir utan Glymu, núúú ... þótti engum mikið,
á kjaftatörn! Það er Kalli og Toni á Brunastöðinni, og einhverjir grassíu-
tappar. Þeir voru við sama heygarðshornið þar, eins og nú, biddu fyrir þér!
Ætli það væri þá ekki rétt að skella sér upp á við, á Skólavörðustíginn,
við getum komið við í Þingholtunum.
Þar lendir maður stundum í habbít út af andskotans tröppunum sem eng-
inn mátti stíga upp í til að stytta sér leið upp í Ingólfsstræti, fyrir Þorsteins
Gíslasonarfrekjunum.
Á Skólavörðustígnum er líka fínt fólk, hefði ég haldið, en ekki á 9 í
gamla daga.
Ekkert skil ég í henni Guðrúnu að hún skuli ekki láta strákaskammirnar
passa, að hann Tolli vaði ekki rófurnar hennar, þessar líka rófur! eins og
kálhöfuð og hvaðeina, sem þar upp sprettur.
Hvað er að tala um Engeyjarættina!
Þarna standa þær, fyrir utan ekkjukassann, Maja Matt og Inga Sör, í
nýju kápunum, en montið! Ég fæ líka nýja kápu fyrir sautjándann, meira
að segja á að sauma liana hjá Rebekku. Einhverjar beinasleggjur eru að
120