Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Blaðsíða 83
RœSa á aldarafmœli Leníns
Ég segi þetta vegna þess, aS í heimssögunni eru engin tvö algjörlega hlið-
stæð dæmi, og engar tvennar kringumstæður eru nákvæmlega eins. Engar tvær
byltingar munu heldur eiga sér stað á nákvæmlega sama hátt. Nýir möguleik-
ar skapast og nýjar aðferðir.
í Rómönsku Ameríku hefur að undanförnu orðið vart vaxandi óróa inn-
an kirkjunnar og hersins, stofnana sem ætíð fyrr hafa verið styrkustu stoðir
alls afturhalds, klíkuveldis og heimsvaldastefnu. Órói þessi stafar af meðvit-
undinni um það arðrán, sem er hlutskipti þjóðanna, vitneskjunni um það ok
sem heimsvaldasinnar leggja á þær, og af þeirri hugdjörfu byltingarkenndu
afstöðu sem ýmsir prestar hafa tekið, og ber þar hæst dæmi Camilo Torres í
Kólombíu. Undanfarar þessa byltingaróróa voru uppreisnirnar í Carúpano
og Puerto Cabello í Venezúela fyrir fáum árum. Hann kom einnig eftinninni-
lega í ljós þegar hópur vaskra hermanna undir forustu Caamano ofursta hratt
af stað stjómskipulagshreyfingunni í Dómíníska lýðveldinu. Sú hreyfing var
bæld niður með afskiptum glæpsamlegra heimsvaldasinna, en hún var engan-
veginn gjörsigruð. Og óróinn gerir sín víðar vart, svo sem í Perú.
Það sem heimsvaldasinnar bjuggust kannski sízt af öllu við var það, að
hreyfingar skyldi verða vart innan herjanna, hreyfingar sem gerði sér ljósa
vanþróun ríkisins og bæri fram stefnuskrá um þjóðlega viðreisn. Nú er það
vitað mál, að þróunarstefnuskrá sem framfylgt er af atfylgi leiðir til bylt-
ingar.
Þetta er nýtt fyrirbæri, allrar athygli vert og fyllsta áhuga. Við fylgjumst
af vakandi áhuga með þeirri hreyfingu, sem er að eflast í Perú, og sá áhugi
er þeim mun meiri sem hinn aftur'haldssami blaðakostur, klíkuveldið og
heimsvaldastefnan hafa með öllum tiltækum ráðum haldið uppi heiftarlegri
árás á ríkisstjórn Perú, afturhaldsárás hótandi kollsteypu. Þar sem við höfum
sjálf svipaða reynslu, þekkjum við mætavel fyrirætlanir og aðferÖir heims-
valdastefnunnar.
Við hljótum að lýsa því yfir í fullri hreinskilni, að við tökum mjög já-
kvæða afstöðu til yfirlýsingar ríkisstjórnar Trinidads og Tobago, sem af hug-
dirfsku fordæmdi hið efnahagslega hafnhann á Kúbu. Við lítum einnig já-
kvætt á þann verknað ríkisstj órnar Chile að leyfa útflutning vissra fæðuteg-
unda til lands okkar, sem áður fyrr voru jafnan keyptar frá því landi, en
höfðu árum saman verið stöðvaðar af völdum hafnbanns heimsvaldasinna.
Við segjum það hreinskilnislega, að við lítum jákvætt á þennan verknað, án
tillits til þeirra ritdeilna sem við höfum átt í við ríkisstjórn Chile og ólíkra
12 TMM
177