Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Blaðsíða 35
í Gömlu Reykjavík
Þá tók hún eftir því, að einn 'höfðingjann vantaði. „Hvar er „litla greyið“?
„Ut á haus“. „Sækir til sjóarins eins og pabbi sálugi, drengurinn.“ „Mamma
er búin að banna honum það.“ „Banna, banna, mega börnin sanna.“ „Kókó
amma! Já, kókó!“
Amma setti upp herforingjasvipinn. „Það verður ekki af því, heyrið þið
það, ekkert kókó og ekkert múður! “
Allir fengu kókó ...
Samdrykkjuna tók fljótt af, bakkelsið gufað upp, kókóið búið, neima það
sem flaut á undirskálunum, peysunum, buxjunum, stólunum og gólfinu.
Þá var borðum hrundið, harkalega ... Út að leika! út að leika!
„Litla greyið“ kom eftir dúk og disk, ilmandi af mannask ... kola.
„Kemur enn bam frá Hólum, óskírt og illa feðrað, heitir Oddur eftir henni
ömrnu sinni, hana! komdu þessu í þig, hún móðir ykkar ætlar að dumma
það.“
Allir búnir í skólanum! allir í leik! Komum í pilla, pilla. Pilla, pilla akur,
kóngsins akur, pilla, pilla akur, kóngsins akur. Hver hefur leyft ykkur að
vera á akrinum? Kóngurinn! Hann á ekki títuprjónshaus í honum. Hann
á hann allan! Hann á ekki títuprjónshaus í honum. Hann á hann allan!
Gtott veður í dag, en á morgun, en hinn, ket í pottinn!
Grýla gamla fór á fjall, hafði með sér grautardall, þá kom krumrni og át
það alit, þá var Grýlu gömlu kalt ...
Hvar býr hún Nípa? Fyrir ofan garð. Hvað gerir hún þar? Verpir eggj-
um. Hvað mörgum á dag? Fullum mæli. Hvað gefur hún gestum sínum sem
að garði koma? Skyr og rjóma. Hvað gefur hún þér? Kö’ku og smér. Hvað
gefur hún mér? Skófirnar úr kollunni og skefur hana vel.
Nonni og Gunna eru hjón, éta bæði hrís og grjón, sofa bæði saman, hafa
litla barnið fyrir framan. Ég óska þér til lukku, að eiga barn í krukku.
Hvað ertu að gera? Taka hrút og skera.
Af hverju er hún mamma þín að steikja blórnur? Af því mallakúturinn er
svo tómur.
Hvað ertu að éta? Hangiket. Hver gaf þér það? Frúin. Hvernig er það?
Gott ég get. Gef mér að smakka, búinn!
Nonni fór í fýlu á laugardaginn var, í pottinn hjá henni Grýlu og sk...
í buxurnar.
Gerum at! gerum at! Þarna er Valdi ... Valdi kaldi með kúk í haldi!
Aumingja strákurinn hann Valdi sem á svo bágt, af því mamrna hans er
alltaf á stúkufundum, og hann er einn heima.
9 TMM
129