Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Page 15
MiSöld og nútími í íslenzku samfélagi Eins og áffur segir flýttu Móðuharðindin fyrir þessum breytingum, en við fyrri &tjórnaraðstæður og stefnu hefði engin breyting orðið, samfélagið hefði jafnað sig aftur í sinni fornu gerð. Kveikjan að breytingunum var ný stjórnarstefna í Danmörku og áhrif upplýsingarinnar þar og á ýmsa forustumenn íslenzka. Stjórnarstefnan tekur að breytast í Danmörku um 1784, átthagafj öturinn var leystur af dönskum bændum 1788, einokunin er afnumin hérlendis 1787 og öll stefnan miðaði í átt til borgaralegs samfélags 19. aldar. í Danmörku höfðu bæimir og þá einkum Kaupmannaböfn verið menningarmiðstöð um aldir, dönsk borgarastétt var gróin og samvaxinn þáttur dansks samfélags og blaut því að taka við og var að nokkru tekin við blutverki aðalsins sem ríkjandi stéttar. Hérlendis tekur borgarastétt að vaxa úr grasi í upphafi 19. aldar og áhrif hennar til mótunar á samfélaginu voru þá svo til engin, það gerðist ekki fyrr en undir næstu aldamót. Danskt umboðsvald og íslenzkir embættismenn móta hérlendis stefnuna og þegar kemur fram á 19. öld tekur mjög að gæta sjálfræðisbaráttunnar til mótunar á bugi íslenzkra menntamanna í Kaupmannaböfn, en þar fór sú barátta fram. Hér á landi var eins og komið var enginn jarðvegur fyrir sjálfræðis- pólitík, félagslegar forsendur skorti. Það er eftirtektarvert að helztu stuðn- ingsmenn Jóns Sigurðssonar í sjálfræðisbaráttunni voru efnaðir útvegsmenn og kaupmenn á Vesturlandi, þeir skildu fyrstir ásamt íslenzkum námsmönn- um í Kaupmannahöfn hvar skórinn kreppti. Jón Sigurðsson báði baráttu sína undir merkjum evrópskrar, sérstaklega enskrar frjálslyndisstefnu, sem var stefna borgarastéttarinnar. Vaxtarbroddur þeirrar stéttar ‘hérlendis studdi því baráttu Jóns Sigurðs- sonar manna bezt. Þótt flestir námsmenn í Kaupmannahöfn fylgdu auknu sjálfræði þjóðarinnar, þá var það á mismunandi forsendum. Rómantíkin kom þar til sögunnar, fornaldarhugmyndir, sem bæði voru ættaðar frá Egg- ert Ólafssyni og þýzkum rómantíkerum hrundu nokkrum 'hluta þess hóps til pólitískra draumóra um endurvakningu þess, sem þeir töldu hafa verið glæsta fornöld hérlendis. Hliðstæða við miðaldadýrkun þýzkra rómantíkera. Gleggsta dæmið um þessa skiptingu var afstaða til þingstaðarins. Róman- tíkerar vildu þing á Þingvelli, en Jón Sigurðsson taldi að efla bæri sem mest höfuðstað landsins í Reykjavík, og þar skyldi þingið háð. Stefna Jóns Sig- urðssonar, frjálslynd og umbótasinnuð var arfleifð frá upplýsingunni, og kröfur 'hans voru reistar á kröfum frjálslyndrar borgarastéttar, því höfðu þær svo lítinn bljómgrunn framan af meðal meginhluta landsmanna hér- lendis, hverra tími var miðaldir, og engu meiri hljómgrunn hlutu ljóð og 109
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.