Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Page 28

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Page 28
Timarit Múls og mcnningar Leikirnir voru auð'vitað miklu fleiri, en þegar ég fer að hugsa um þá, eru á því ýmsir annmarkar að festa þá á blað. Hugsið ykkur ef fyrsti leikurinn væri: Á ég að gefa þér gott, skítt í pott! eða, Á ég að gefa þér gott, farðu upp á loft og skítt í hálfanannan! kopp, og þaðan af verra! Hvað myndi það segja í Reykvíkingafélaginu, það úr Miðbænum, þegar það heyrði þetta í útvarpinu. „Nej den er for tyk!!“ Kannski hefur þetta gengið svona til í Skuggahverfinu, Þinghollunum, Bjarnaborg og Pólunum, já, og í Austurbænum eins og hann leggur sig alla leið inn að Norðurpól, og lengra ef Tunga er talin innanbæjar. Vera má einnig í Grjótaþorpinu, Kaplaskjólinu, Selbúðum, Hólavelli, Holtinu og Melunum. En í Kvosinni!! í öðru lagi er mér ótamur orðalistastíll, og vísast að ýmislegt flyti með sem ekki kemur „mál við Pál“, ekkert líklegra en öll familían, — „Forsjónin“ „Mín kona“ „Skammirnar" „Góða stelpan“ hennar ömmu, og „ég“, — væri komin í spilið, áður en ég vissi af ... „Forsjónin“ var ekkert lamb að leika við, það viðurkenni ég, en æði oft birtist hann þegar „leikurinn“ stóð sesm hæst. „Mín kona“ hafði reyndar annað að gera en leika sér. Átti í „eilífu stríði“, eins og aðrar mömmur með „Skammimar“ sínar, en ósjaldan í návígi við leiki. Erfitt verður að skilja ömmu frá leikjunum, sem alltaf var að leika sér, og leika ... Náttúrlega var hún með sokkbolinn dinglandi, seint og snemma, en ég sá ekki betur en prjónarnir dönsuðu eins og við í „Með 'höndunum segjum við klapp, klapp, klapp, með fótunum segjum við stapp, stapp, stapp, einn, tveir, þrír, eitt ofurlítið spor, já einmitt á þennan ’hátt er leikur vor“. Hún skemmti sér líka konunglega við að sandskúra stigann hjá sér og snjakahvítu þrösk- uldana. Allt upp á hrósið, nema hvað ... Eða skemmtitúrarnir hennar út um allan bæ á gljáburstuðum sauðskinn- skónum. Amma var svo „fín“, af því hún hafði verið þénandi hjá Sjerbekk, og part úr vetri hjá Stephensenssystrum ... Það fór ökki framhjá neinum. Aldrei var hún skottuklædd. Húfan var föst við hana, 'held ég, en sjallaus, þegar gott var veður, með dúlksvuntu, og skakka yfir dagtreyjunni. 122
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.