Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Blaðsíða 45
/ Gömlu Rcykjavík
var svo fín, það er ekki hægt að lýsa því, með fléttur niður á rass, með
rauðum silkiborðum um!
Og undirlífin, öll í blúndum og silkislaufum, og skjörtin, ein blúnda! upp
í gegn!
Mamma átti bara léreftslíf með tökkum, og lastingsnærpils með pifu og
lekum.
Svo sagði hún okkur frá kellingunni á Mýrunum sem prjónaði svo fa'lleg
módest, og frá kastpilsunum og spariskökkunum, og aldrei gleymir hún
spássérstreyjunni sem Gudda í Birtingaholti gaf henni þegar hún var 10 ára
og loksins er hún búin að fá kasmírsjal til að hafa þegar hún fer að fylgja.
Pabbi fór til að drekka Túborg með Borgbjerg og eitthvað sterkara með
Stauning, hann var ekki orðinn gútemplari þá. Og þó?
Hann keypti heilmi'kið. Handa sér keypti hann diplómat, voterprúfkápu,
blekstatíf, skrífonálag og gallosíur.
Við stelpurnar fengum regnslá, nýmóðinshúfur, múffur og búa.
Strákarnir fengu matrósahúfur með Niels Juel og Dannebrog á borðanum,
rúlluskauta og glóbus.
Mamma fðkk skilerí frá Olpunum í Sviss, avísband með kúnstbróderíi,
„Kan du ikke tale“, og túmata, en því miður gat enginn lagt þá sér til munns.
Svo keypti hann ósköpin öll af bókum, eftir hina og þessa, Brandes og
Björnson, Garborg og Grieg, Kjerkegor, Kúlá og Kielland, svei mér ef ég
man, jú, Hó si Mín, nei Andersen Sadolin og Holmblad, og hvað þeir hétu.
Samlede værker hefur hann ekki áhuga á, af því hann er ekki læknir. Mamma
fékk prískúrant og greifinnu Danner.
Mér þótti gaman að rápa í búðir með mömmu. Við keyptum svuntu með
ganneringum og missemi hjá Braun, og bobínett í gardínur.
Hjá Jacobsen keyptum við bommosíubuxur, skjuðblússu, og skoðuðum
fallegu portérana.
Þar voru allar hillur fullar af krami og dótaríi, sifjoti, gabadíni, kadetta-
taui, frottetaui, alpakka, sjirtingi, tvisti og boji.
En allt var þetta „svo sem ekki neitt neitt“, sagði mamma alltaf, hjá
Thomsens Magasíni, alveg eins og aðrir menn hj á Hannesi Hafstein.
„Er mig að dreyma eða er ég að vaða.“
I Liverpool keyptum við magarín, allehonne, stuðaðan kanel, semilíugrjón
og eitthvað fleira kruðerí.
139