Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Page 71
Snjómokstur
baldi : Það varðar okkur ekkert um. Við verðum sóttir.
líkafrón: Verðum við sóttir?
baldi: Við verðum sótlir í trukk. Þú manst að við komum í trukk!
lÍkafrón órólegur: Nei. Ég man það ekki.
baldi: Þú manst að þeir sögðust sækja okkur. þegar þeir væru búnir austan
í!
líkafrón órólegri: Nei. Ég man það ekki!
baldi: Jæja. Þú hefur kannski verið sofandi? Stutt þögn. Það er alveg rétt,
ég man það núna, þú varst eins og þú gengir í svefni! Ég þurfti að ýta við
þér, manstu það?
líkafrón: Já, ég man það, ég hrökk upp, þegar þú ýttir við mér. En hvar
erum við?
ealdi : Þeir sögðust koma og sækja okkur, þegar þeir væru búnir austan í.
Það þýðir að við erum vestan í.
líkafrón: Vestan í! Stutt þögn. Vestan í hverju?
baldi: Nú, heiðinni auðvitað!
líkafrón: Hvaða 'heiði ?
baldi: Heiðinni sem menn eiga við, þegar þeir tala um heiði!
Stutt þögn.
lÍkafrón: Það segir ekki mikið. Þú svarar bara útúr.
baldi : Hvað viltu að ég segi meira! Okkur varðar ekkert um, hvar við erum.
Við verðum sóttir í trukk. Og þá verður líka mælt hjá okkur um leið, hjá
hvorum um sig!
LÍKAFRÓN fer aftur að moka; á báðum áttum: Ja, ef þú ert rólegur, þá get ég
náttúrlega verið það líka ...
baldi : Og ég er rólegur. Ég hef mokað á þessum slóðum fyrr!
líkafrón : Þá er ég líka rólegur ... Úr því við verðum sóttir ...
BALDI: Auðvitað verðum við sóttir. Þeir sögðu það.
lÍkafrón: Ja, ég get náttúrlega verið rólegur, úr ]>vi að þú ert það. Þögn.
Samt finnst mér eitthvað undarlegt ...
BALDI: Undarlegt?
LÍkafrón: Eitthvað sem mér fellur ekki ... Ég kynni betur við að vita, hvar
ég er.
BALDI háðskur: Af hverju kallarðu þá ekki í Drottin þinn? Hann ætti að
geta sagt þér það!
líkafrón: Það er ekki hægt.
165