Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Side 77

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Side 77
Rœða á aldarajmœli Leníns leiÖis til endanlegrar niðurstöðu. Enginn hefði heldur verið fær um að út- skýra og auka við hana á þann hátt sem Lenín gerði. Lenín stofnaði það sem í byrjun var þekkt sem Rússneska sósíalíska lýð- ræðið og síðar varð Bolsévíkaflokkurinn, en loks Kommúnistaflokkur Ráð- stjórnarríkjanna. Raunverulega lagði hann hyrningarsteininn að skipulaginu og hreyfingunni. Þróun stjórnmálalegrar og byltingarsinnaðrar hugsunar naut innblásturs frá skapandi athöfnum Leníns í svo ríkum mæli, að hann hlýtur að teljast hugur og hjarta þeirrar byltingarhugsjónar, hreyfingar og flokks. Fáar eru þær framkvæmdir, og kannski alls engar af stjórnmála tagi, sem notið hafa að jafn miklu leyti gáfna og hugsunar eins einstaks manns. Við skilgreiningar var Lenín óþreytanlegur og eljumaður svo af bar. Elcki er ofmælt að segja, að frá þeirri stund sem gildi stjórnmála varð 'honum ljóst, hafi hann aldrei slakað á til endadægurs, ekki linnt á útskýringum, rann- sóknum og starfi í þágu byltingarinnar. Enginn stríðsmaður hefur nokkru sinni átt í eins mörgum hugsjónaorrust- um og Lenín. Undravert er það hversu marga hildi hann háði á vettvangi hugsjóna. Ekki er anná'll hans að þessu leyti heldur sambærilegur við nokk- urs annars manns, sem ávann sér sæmd fyrir sakir einstæðra afreka. Marx komst svo að orði, að með tilkomu þjóðfélags án arðræningja og arðrændra, hins kommúníska þjóðfélags, segði mannkynið skilið við forsögu- skeið sitt. Þetta kann að hljóma sem slagorð eitt, og við skulum hugleiða og reyna að skilja við hvað Marx átti. Svipumst um í veröld nútímans. Minn- umst þeirrar ótrúlegu villimennsku, sem átt hefur sér stað fyrir ekki ýkja- löngu, þess tíma þegar fasisminn hafði svælt undir sig mestanpart Evrópu. Og horfumst í augu við þá ótrúlegu villimennsku sem framin er þessa stund- ina gagnvart þjóðum Víetnams, Laos, Kambodju, í Asíu, Afríku og annars staðar. Meginþorra nútímatækninnar hefur verið beitt gegn manninum, hún er notuð til þess að farga þjóðum og eyðileggja verk þeirra, svipta þær rétt- inum til að Iifa, rétti til lágmarks lífsgleði. Lenín hélt á loft marxískri kenningu andspænis sérhverri blekkingu, rang- færslu og útúrsnúningi. Hann hóf hana á loft og sýndi hversu hárrétt hún var. Sögulegar staðreyndir hafa sýnt fram á, hve allar þær stefnur sem Lenín andæfði leiddu til kreppu í byltingarhreyfingu hinna ýmsu landa Evrópu, til ósigurs og til svika við hreyfinguna. Varla er nokkur kafli aðdáunarverðari en sá, hvernig Lenín hélt uppi vörn fyrir hugsun byltingarinnar. 171
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.