Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Side 84
Tímarit Máls og menningar
skoðana okkar og hennar. Við erinn einnig þeirrar skoðunar, að ríkisstjórn
þess lands hafi sagt skilið við úrsérgengnar staðhæfingar og snúizt gegn hafn-
hanninu á þann veg, að okkur er ekki til neinnar vansæmdar.
Vissulega ætti óvinum Kúbu að skiljast það, að andkúbanskar athafnir og
yfirlýsingar borga sig ekki lengur, eða hafa alltént orðið síður ábatavænleg-
ar. Við erum í framsókn, og enginn getur fullyrt það, að heimsvaldastefn-
unni takist að halda velli hér í álfu á komandi árum.
Við erum brautryðjendur sósíalískrar byltingar í þessari álfu. Það er
okkur mikil sæmd að hafa verið þess megnugir að standa vörð um hana
við harla erfiðar kringumstæður. Frá henni munum við aldrei hvika. Við
höfum veitt viðnám með heiðri og staðfestu. Við komum fram sem sigur-
vegarar. Það hefur á sannazt, að enginn er fær um að kremja okkur né
kyrkja. Þar sem við nú erum að hefjast handa svo að um munar, feta okkur
upp á við fyrstu skrefin, mun þróunarhlutfall lands okkar verða stórkostiegt
á allranæstu árum, í krafti starfshátta okkar og úrræða og þeirrar aðstoðar
sem við höfum notið.
Þannig er framtiðin okkar. Heimsvaldastefnan getur ekki vænzt annars
en kreppu og ósigurs. Hvað klíkuveldið snertir, þá mun verða snúizt gegn
því með því byltingarfyrirbæri sem fer nú sem eldur í sinu um heim allan,
einkum þó hér í á'lfu. Heimsvaldastefnan getur ekki lengur verið viss um að
halda tökum sínum á þessu meginlandi.
Þetta eru staðreyndirnar, þetta er mergurinn málsins. Allt er þetta mjög
ljóst. Við 'höfum talað fyrir öllum heimi án allra vafninga. En við vildum þá
líka mega tala enn ljósara. Og við teljum, að ekkert tækifæri sé betur til þess
fallið en einmitt þessi merkisdagur, þessi einstæði dagur, hundraðáraafmæli
Leníns.
Látum okkur því fagna. Látum okkur fyrst alls hyila hinn ódauðlega Lenín!
Megi vinátta milli þjóða Ráðstjórnarríkjanna og Kúbu vara eilíflega!
Patria o muerte!
Við munum sigra!
LítiS eitt stytt eftir Prensa Latina.
Elias Mar þýddi.