Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Side 97

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Side 97
liafa fyrir reglu að lesa ekki formálana, að fyrsti þáttur í Landnámu-formála þessarar útgáfu, §8 Gerðir Landnámabókar (fjórar blaðsíður), er nauðsynlegur lestur þeim sem vilja hafa nokkurn veginn fullt gagn af að lesa Landnámutextana sjálfa (auð- vitað dugir ekki minna en allur formálinn ef menn vilja fá það út úr textanum sem unnt er). Annars er engin ástæða til að vara neinn við formála Jakobs; honum er einkar vel lagið að skrifa Ijóst og líf- lega um efni sem gæti orðið allstrembið í höndum annarra. Landnámutextunum er þann veg háttað hér að Sturlubók er lögð til grundvallar og er allur texti hennar prentaður, en hinn höfuðtextinn, Hauks- hók, er því aðeins prentaður að frávik hans frá texta Sturlubókar séu meiri en svo að vel fari á að geta þeirra í neðan- málsgreinum. H-texti er ævinlega prentað- ur á hægri blaðsíðu í opnu, andspænis S-texta, og framhald hans (ef nokkuð er) kemur síðan á næstu blaðsíðu hægra meg- in í opnu (t. d. byrjar H-texti á 33. bls. og heldur síðan áfram óslitið á 35. bls., en samsvarandi S-texti á 32. bls. og 34. bls. o. s. frv.). Efst á hverri blaðsíðu er prentaður stafurinn S eða H (með kafla- tölum) eftir því hvort höfuðtextinn er úr Sturlubók eða Hauksbók, og auk þess er liver kafli merktur bókstöfum og kafla- tölum (þeim sömu og í Landnámabókar- útg. frá 1900). Eina undantekningin er fyrsta blaðsíða og fyrsti kafli textans; þar er engin merking efst á blaðsíðu og engin kaflamerking. Ástæðan er sú að fyrsta blaðsíða er sérstök tilhaldsblaðsíða sem ekki má óprýða með blaðsíðutölu eða ann- arri merkingu, og kaflinn byrjar á skraut- staf og er þar ekki rúm fyrir kaflamerk- ingu. Fróður lesandi á að vita, að þetta er S-texti og að hér er látið nægja að tilfæra neðanmáls orðamun úr H. En vel hefði mátt geta þessa í neðanmálsgrein. Umsagnir um bækur Leifarnar af Melabók eru prentaðar sem neðri texti við samsvarandi kafla megin- textans og með heldur smærra letri. En sökum þess að sú Landnámabók byrjaði austast í Sunnlendingafjórðungi, en ekki á landnámi Ingólfs eins og hinar, er byrjað hér á að prenta 15. kapítula hennar á 111. blaðsíðu. Textinn af fyrra blaði Melabók- ar, kap. 1—14, byrjar hins vegar ekki fyrr en á 338. bls., þar sem upp hefst landnám í Sunnlendingafjórðungi samkvæmt hinum gerðunum. Auk þess eru tilfærðir neðan- máls allir þeir leshættir úr Þórðarbók sem með meiri eða minni vissu hafa verið sóttir í Melabók á meðan hún var heilli. Þennan mikilvæga þátt verksins, þar sem leitað er hins upphaflegasta efnis Landnámabókar, hefur Jalcob Benediktsson undirbúið svo vel sem auðið má verða með útgáfu sinni á Skarðsárbók Landnámabókar (1958). Jón Jóhannesson leiddi í Ijós á sínum tíma að séra Þórður Jónsson í Hítardal (d. 1670) hefði aukið uppskrift sína af Landnámabókargerð Björns bónda á Skarðsá í Skagafirði (d. 1655) með glefsum úr Mela- bók, sem að sínu leyti hefði verið lítt breytt afrit eftir Styrmisbók (Gerðir Land- námabókar, 1941, bls. 19—36 og 174). Loks eru til tíndir neðanmáls allir þeir leshættir úr Skarðsárbók sem kynnu að geyma upphaflegra texta en Sturlubók og Hauksbók. Þessu er svo varið að Skarðsár- bók er samsett eftir skinnhandritinu af Sturlubók, sem brann í Kaupmannahöfn 1728, og eftir skinnhandritinu af Hauks- bók, sem þá var enn að mestu heilt, og hefur Björn sumstaðar getað lesið meira eða réttara en séra Jón Erlendsson sem pappírsuppskriftirnar gjörði. Enn er ógetið fjölmargra athugasemda útgefanda neðanmáls við texta Landnámu, einkum um ættir og örnefni. Er það allt hinn þarfasti fróðleikur og víða drepið á vandamál sem ln'ði úrlausnar. 191
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.