Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Síða 33
Bylting sem ekki sér fyrir endann á
„Úti í atvinnulífinu gegna konur hliðstæðu hlutverki og eiginkona-móðir
innan fjölskyldunnar“. Menntakerfið er ein styrkasta stoðin til viðhalds við-
teknum hugmyndum um verkaskiptingu kynjanna. Um þessar mundir er
þannig ástatt í Englandi, að % hlutar allra 18 ára stúlkna eru hvorki við
nám né heldur hljóta þær nokkra sérþjálfun til starfa. Sú verkefnaskipting
foreldra, sem áður var lýst og felur í sér, að faðirinn annast þá þætti, er lúta
að hinu ytra umhverfi, en móðirin sinnir hinum „innri“ þörfum, breytist
ekkert að marki, þótt konan stundi launavinnu. Þetta stafar fyrst og fremst
af því, að konur gegna að jafnaði ábyrgðarminni störfum en karlar og við-
horfin í fj ölskyldunni mótast af því. Meginniðurstaða ofanskráðra hugleið-
inga hlýtur að verða sú, að atvinna — af því tagi, sem konum stendur til
boða um þessar mundir — hafi ekki fært þeim neitt eiginlegt hjálpræði.
2. Æxlunin
Vísindalegar framfarir á sviði getnaðarvarna geta, eins og rakið var hér að
framan, orðið til þess, að ekki þurfi framar að koma til þungunar gegn vilja
hlutaðeigenda, en þannig eru hin uphaflegu tildrög að miklum meirihluta
barnsfæðinga í heiminum núna, jafnvel hér á Vesturlöndum. En hin nýja
tækni við getnaðarvarnir (pillan) er aðeins á byrjunarstigi --- og hefur
raunar enn sem komið er einungis verið beitt í slíkri mynd, að það staðfestir
það ójafnræði, sem ríkir á sviði kynlífsins hér á Vesturlöndum. Vænta má
verulegra endurbóta á þeim aðferðum, sem nú er beitt, og enn skortir mjög á,
að þetta nýja hjálparmeðal nái jafnt til allra stétta og allra landa. Líklegt er,
að áhrif hinna nýju aðferða til að koma í veg fyrir getnað, muni í iðnríkj-
um okkar tíma einkum verða af sálfræðilegum toga; konur munu framvegis
áreiðanlega njóta kynlífsins, án þess að kenna þess kvíða og þeirrar hvatabæl-
ingar, sem jafnan hefur verið við það tengd. Hinar nýju aðferðir munu án
efa rjúfa það nána samhengi, sem verið hefur milli kynlífs og barnsburðar.
Enn er of snemmt að fullyrða, hversu víðtæk áhrif pillan muni hafa til
frambúðar á tíðni fæðinga og fólksfjölgun hér á Vesturlöndum eða hvort
þau áhrif verði umtalsverð. Eitt af því, sem mest hefur skotið skökku við í
Bandaríkjunum hin síðari ár, er einmitt, að fæðingartalan hefur hækkað mjög
snögglega. Síðasta hálfan annan áratug hefur hún verið hærri í Banda-
ríkjunum en í vanþróuðum ríkjum á borð við Indland, Pakistan og Búrma.
Þessi þróun sýnir raunar það eitt, að um þessar mundir er auðveldara um
vik fjárhagslega en áður hefur verið að sjá fyrir stórri fjölskyldu í auðug-
asta ríki heims, enda uppgangstímar. En hér má einnig greina, hversu sterk
223