Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Síða 51
Vatn og penni og hrafnar
Ég hugsaði hins vegar: Hvar ætli hún setjist í tjaldinu, hægra megin eða
vinstra megin, halli höfði sínu að súlunni, en æpi ekki, örugg um að fjalla-
þjófar steli ekki hrjóstum hennar meðan ég er hjá henni þótt ég sé ekki
nema níu; en ég veitti því athygli að magi hennar hristist þegar hún hló; en
eitt sinn sá ég slöp á íæti hennar; það var einmitt þegar hún sagði mér frá
blómi sem hún vissi ekki hvað hét en var fallegt uppí klettasyllu nærri fossi.
Nema ég gat ekki náð til þess, enda ekki nema fimm, sagði hún.
En mér var sama hvar ég var, alveg sama, og það var bara hendi minni
að kenna ef nokkru var um að kenna ef grösin við vatnið særðust en heim-
urinn var góður og ástin var góð og penninn minn brotnaði í vatnsskorp-
unni að skrifa söngva í þjótandi strauma og birtu og ástin var í vatninu og
vatnið var ástin.
Til fclagsmaima Máls og íuenmngar
Fyrsta félagsbók ársins 1972 er komin út á undan þessu síðbúna tímaritshefti. Er það nýtt
bindi af útgáfu Máls og menningar á ritum Þórbergs Þórðarsonar, frásagnir af ýmsu tagi,
sem margar hafa ekki áður komið út í bókarformi. Þá eru komin út fimm bindi af þessari
útgáfu, og verður henni haldið áfram á næstu árum. Að líkindum verða næstu bækur
RauSa hœttan, aukin öðrum ritgerðum höfundar um Ráðstjórnarríkin, og Bréf dl Láru.
ásamt nokkrum ritgerðum, sem eru beinlínis sprottnar af þeirri bók.
Félagsmenn eiga á þessu ári eins og að undanförnu kost á sex bókum fyrir hæsta fé-
lagsgjald. Önnur bókin er Franska byllingin eftir Albert Mathiez í þýðingu Lofts Gutt-
ormssonar. Fyrra bindið kemur á þessu ári en hið síðara á árinu 1973. Mathiez var frægur
franskur sagnfræðingur og ruddi braut nýjum skilningi á frönsku byltingunni. Þetta mun
vera í fyrsta skipti sem út kemur á íslenzku sérstök bók um frönsku byltinguna. Þá er
skáldsagan Lazarus frá Tormes, þýdd úr spænsku af Guðbergi Bergssyni. Þessi skáldsaga
ónefnds höfundar frá 16. öld er, þó stutt sé, með víðkunnustu ritum spænskra bókmennta
og hafði mikil áhrif á skáldsagnaritun í Evrópu og víðar. Ætlunin er að gefa út þrjár
pappírskiljur á árinu. Sú fyrsta er Kalda stríSiS eftir Daniel Horowitz, þýdd af hópi náras-
manna í Ósló. Þá er NauSsyn listar eftir Ernst Fischer í þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar.
Þriðja pappírskiljan er ekki að fullu ákveðin þegar þetta er skrifað. Þá er þess að geta
að í ráði er að gefa út að nýju fornaldarsögu Ásgeirs Hjartarsonar, í einu bindi, og geta
félagsmenn tekið hana sem félagsbók ef þeir kjósa. Loks er væntanleg ný bók í mynda-
flokki Máls og menningar: Maásse.
Árgjöld ársins 1972 eru sem hér segir: hæsta gjald (sex bækur og Tímaritið) kr. 2.200,
miðgjald (fjórar bækur og Tímarit) kr. 1.800, lægsta gjald (tvær bækur og Tímarit) kr.
1200. Er þá miðað við bækurnar óbundnar að venju. Verð á bandi á Frásögnum Þórbergs
Þórðarsonar er kr. 170 rexínband, kr. 370 skinnband.
16 TMM
241