Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Síða 93

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Síða 93
Bréf til ímyndaðs leikskálds Ur því að ástandið er nú einu sinni svona, þá munduð þér frá listarinnar sjónarhóli séð eyða tíma yðar til einskis með því að skrifa samskonar sjón- leiki og þá, sem eru venjulega settir á svið á Broadway. Ef þér hafið listgáfu, ættuð þér að taka þátt í þessari könnun á klassískum leikbókmenntum, sem er, hversu þversagnarlegt sem það hljómar, leit að ósviknum nútímaleikbók- menntum. Af frjósömum tengslum nútímans við slíka fortíð mun spretta glæsileg framtíð, ef nokkurrar framtíðar er annars von. Hvers langar yður í rauninni til? Það eru óskir yðar, sem eru þyngstar á metunum. En ekki það, sem þér segið vinum yðar, að séu óskir yðar. Ekki það, sem þér haldið stundum, að séu óskir yðar. Ekki það, sem þér venjulega hyggið vera óskir yðar, heldur það, sem yður finnst endanlega vera óskir yðar, hinar raunverulegu óskir yðar. Emerson varaði okkur við því að óska einhvers í alvöru, vegna þess að líklega fengjum við þá ósk okkar uppfyllta. Ef þér óskið þess af heilum huga að verða mella, þá verðið þér það. í leiklistarheiminum er það hægur vandi og þér munuð aldrei iðrast þess. I ellinni getið þér meira að segja haft ofan af fyrir yður með því að skrifa greinar um hverju þér eigið velgegni yðar að þakka. Mér þykir þó bréf yðar heldur benda til hins, að þér óskið að verða leikskáld. Ef svo er, þá verðið þér að reyna fyrir yður og komast að því sanna. Tíminn mun skera úr því. Lítið á yður á meðan sem rithöfund og þar af leiðandi sem listamann. Jafnvel þótt þér séuð leikskáld, getur farið svo, að þér komizt ekki áfram. Það mun særa tilfinningar yðar mjög mikið, einkum þegar þér sjáið hæfi- leikalausa vini yðar komast á frægðartindinn sem leikskáld. Listamenn þarfn- ast velgengni. Þeir krefjast hennar samt sem áður ekki. Þótt eftirgangsleysi þeirra á þessu sviði sé ef til vill ánægjuefni meðal þeirra, sem arðræna þá, þá er það engu að síður sprottið af styrk, er býr í listamönnunum sjálfum. Þeir geta þraukað af án velgengni, þótt með erfiðismunum sé. Stolt þeirra heimtar jafnvel meiri fullnægingu heldur en hégómagirnd. Þeir eru alvöru- menn. Þeir vilja jafnvel kaupa varanlegan orðstír fyrir fljótfengna frægð. Ef þér, ungi maður, verðið hins vegar þess vísari, að þér séuð ekki leik- skáld og þeir á Broadway eru yður sammála, reynið þér eitthvað annað nauð- ugur viljugur. Ef því fylgir kvöl, er það ekki kvöl þess, sem á völina. Ef yður sjálfum finnst þér ekki vera leikskáld, en þeim á Broadway finnst þér aftur vera það, verður gerð gangskör að því að telja yður hughvarf og sannfæra yður um það, sem þér vitið að ekki er satt. Þetta er orðin nokkuð algeng tegund sannfæringar nú á tímum og hún er það band, sem tengir tvær fræg- 283
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.