Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Side 7

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Side 7
Sverrir Kristjánsson Kreppan og valdið Ræða flutt á samkomu íslendinga í Ósló 1. des. 1975 Góðir landar. Mér þykir það ekki nema sjálfsögð kurteisi að hefja mál mitt á því að þakka fyrir mig. — Þakka stjórn íslenzkra stúdenta og námsmanna í Ósló fyrir að bjóða mér hingað að taka þátt í 1. desembergleði ykkar. Við Is- lendingar erum að því leyti fremri öðrum þjóðum að við eigum okkur tvo þjóðhátíðardaga og fögnum fullveldi þjóðar okkar í hvorutveggja skiptið. 1. desember 1918 og 17. júní 1944. Eg er nú svo gamall orðinn að ég var tíu vetra 1. desember 1918. Eg var þá kominn á þann aldur að ég mætti muna vel þann dag. En svo er þó ekki. Hann er hulinn í minni mínu undarlegu mistri. Vera má að nokkru valdi þar um að þessi dagur var sveipaður svörm. Yfir vöggu hans svifu dökkleitar fylgjur sem slegizt hafa í förina með sögu Islendinga síðan landið byggðist, innlent eldgos og erlend drepsótt. En síðar á ævinni hefur 1. desember jafnan verið í vimnd minni fullveldisdagurinn í sögu Islands og mér hefur þótt hann tilkomumeiri en sá er síðar kom og við gumum jafnan mikið af, 17. júní 1944. Hvers vegna? Eg hygg vegna þess, að þessir fullveldisdagar okkar urðu til hvor með sínum hætti. 1. desember 1918 var árangur langrar baráttu, pólitískra markmiða, sem við höfðum stefnt að allt frá því þjóðfundi okkar var hleypt upp sumarið 1851. Við fengum þá verklaun okkar greidd að kveldi eftir langan vinnudag. Okkur er það oft tamt Islendingum að miklast af sjálfstæðisbarátm okkar og þeim sigri er unninn var 1918. Margar aðrar þjóðir höfðu á sama tímabili og við, frá miðri 19. öld og fram til loka fyrri heimsstyrj- aldarinnar, háð baráttu fyrir frelsi sínu og sjálfstæði, lagt í sölurnar bæði mannslíf og eignir, fallnar þjóðhetjur höfðu varðað veg þeirra til frelsis. Við Islendingar gemm ekki hrósað okkur af slíkum fórnum. Frelsisbar- átta okkar var mannskaðalaus. Kannski erum við Islendingar ekki gerðir úr því efni, sem drottinn býr til úr píslarvotta. Við höfum aldrei verið 101
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.