Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Blaðsíða 40

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Blaðsíða 40
Tímarit Aláls og menningar ins tók hann upp úr annálum Halls og Holinsheds samkvæmt þáttum herra Tómasar Mores. Ekki breytti hann eðli þess né atburðarás. Jafnvel þessu djöfullega tiltæki með jarðarberin hafði More lýst með svotil sömu orðum. Var Shakespeare aðeins að endurskapa, blása nýju lífi í gamla söguleiki sem voru vinsælir á sviði í Lundúnum, svo sem Ricbardus Tertius eftir Tómas Legge, eða Sönn saga Ríkarðs þriðja, sem enginn vissi höfund að? Var Rtkarði þriðja einungis ætlað að vera eitt blað sögunnar, hroðalegur þáttur úr fornum annálum Englands? „Fyrirtaks veröld!“... En hvaða veröld? Ríkarðs þriðja? Shakespeares? Um hvaða veröld var Shakespeare að skrifa? hvaða tímum vildi hann lýsa? Var það veröld lénsbarúna, sem lóguðu hver öðrum á miðri fimmtándu öld, eða kannski sá heimur, þar sem sú góða, vitra og guðhrædda drottn- ing, Elsabet, réð ríkjum? Sú hin sama Elsabet, sem hjó af Maríu Stúart höfuðið þegar Shakespeare hafði þrjá um tvítugt, og sendi á höggstokkinn eina fimmtán hundruð Englendinga, þeirra á meðal ástmenn sína, ríkis- ráðgjafa, guðfræðidoktora og lagadoktora, hershöfðingja, biskupa, háyfir- dómara. „Fyrirtaks veröld . . .“ Eða leit Shakespeare svo á, að sagan væri linnulaus runa af ofbeldi, endalaus fárviðris-vika, svo að einungis nauða- sjaldan brýzt sól fram úr skýflókanum á miðjum degi með stopult veðra- slot að morgni, eða kyrrlátt kvöld þegar elskendur faðmast og fara að sofa undir trjánum í Ardenskógi? . . . flýt þér úr þessu sláturhúsi, því annars muntu fylla dauðra flokk. (Ríkarður þriðji, IV, 1) „Fyrirtaks veröld...“. En hvað táknaði raunar Vélin Mikla í augum Shakespeares? Röð af kóngum að klífa hinn mikla stiga sögunnar og hrinda hver öðrum niður? eða hrönn af heitu blóði, sem rís upp yfir höfuð og slær augun blindu? Náttúrleg skipan fótum troðin, svo að illt klekur út illu, hver misgjörð hrópar á hefnd, hver glæpurinn rekur annan? Eða grimmilegt þjóðskipulag þar sem lénsmenn og herrar eigast illt við, rík- inu er stjórnað eins og búgarði, og verður þeim sterkasta að bráð? Nakin valdabarátta, eða ólmur sláttur mannshjartans sem ekkert hyggjuvit getur flýtt né stöðvað, en dauður fleinn af hvössu stáli fær eitt sinn rofið að fullu? Koldimm órofa nótt sögunnar, þar sem aldrei skímar af degi, eða myrkur sem fyllir mannlega sál? 134
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.