Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Blaðsíða 108

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Blaðsíða 108
Tímarit Máls og menningar thesis = samhverfa — leiða þó flókið atriði sjaldnar til fullnaðarskilnings i einni lom. Samhverfan er „upphafin“ (þetta orð „aufgehoben“ hefir þríþætta merking í heimspeki Hegels) og getur orðið frumhverfa og framkallað nýja andhverfu á æðra skilningsstigi. Eins og sjá má er slíku hugsunarkerfi ætlað að sameina, og vegna frábærrar þekkingar sinnar á hugmyndasögunni, óbilandi trúar á ratvísi röklegrar hugsunar og óhvikullar samkvæmni tekst Hegel að sýna, að kenningar, stefnur og heims- sögulegar atburðarásir, sem virtust í fyrstu algerar andstæður, verða í Ijósi hinnar dialektisku rökfræði samslungin þróunaröfl í framvindu menningarinnar. Þessu litla innskoti er ætlað að sýna, að Páll velur sér ekki auðveldustu leið- ina, þegar hann ákveður að styðjast í spjalli sínu við heimspeki Hegels. Val- ið er samt viturlegt og lýsir glöggri yfirsýn yfir þróun heimspekinnar síðan Hegel leið. Að vísu veitir takmarkað rúm þessarar litlu bókar engin tök á að rökræða einstök atriði í hinni marg- brotnu kenningu hins víðfræga heim- spekings, enda er það ekki ætlun höf- undar. En með þvi að Hegel leitast við að fella meginstrauma menningarinnar og heimssögulegar atburðarásir í eina röklega samslungna heild, þá reynist bókarhöfundi nærtækt að túlka ýmsan vafa og vanda núlifandi kynslóða í anda hans. Einstaklingurinn andspænis hinni hlutrænu menningu, viðleitni hans á skammri ævi og straumþung þróun hins yfirpersónulega anda, eru í senn vandi okkar tíðar og meginatriði í heimspeki Hegels. Dr. Páll samræmir þetta með skarpskyggni og orðleikni, sem verðskuldar aðdáun. Tólfti kaflinn, Lífsþrá og sjálfsþekk- ing, í bók Páls, er snjöll túlkun á kenn- ingu, sem Hegel setur fram á 10 blað- 202 síðum í Phánemenologie des Geistes.1) Margir telja, að þessi stutti kafli hafi orðið kveikjan að kenningu Karls Marx um alræði öreiganna. Ef það er rétt, þá mun vera vandfundinn áhrifameiri tíu blaðsíðna texti i heimspekilegum bók- menntum fyrr og síðar. Jafnframt ber sú spá um stefnu samfélagsþróunarinn- ar, sem fram er sett í þessum kafla, glöggt vitni um það, hvernig höfundur- inn, konunghollur prússneskur emb- ættismaður, lætur persónulega vild sína og stéttarvitund víkja miskunnarlaust fyrir réttu mati þeirra afla, sem hann skilur að eru og munu verða ráðandi í samfélagsþróuninni. „Hann leitast við að varpa Ijósi á andstæður tilverunnar og sýna hvernig þær samtvinnast í veruleikanum," eins og Páll orðar það (bls. 51). Framanskráða hugleiðing má vitan- lega ekki skilja þannig, að dr. Páll — né heldur undirritaður — telji Hegel hafa rétt fyrir sér í hverju einstöku atriði. Páll beitir heimspeki hans framar öllu sem uppistöðu fyrir ívaf eigin túlkunar á viðfangsefni sínu: gagn- kvæmri afstöðu hugsunar og veruleika. Hann neyðist því til að sleppa ýmsum atriðum, sem eru í sjálfum sér mikil- væg, svo sem stefnumarkandi virkni hins hlutræna í þróuninni („List der Vernunft") svo og nánari greiningu á Geist-hugtaki Hegels, en hefði orðið of rúmfrekt í bókinni. Hins vegar skýrir hann og gagnrýnir Hegel óbeint, þegar hann snýr sér að þeim ólíku stefnum, sem heimspekin greindist í síðar. Sum- ar eiga sterkar rætur i heimspeki Heg- els, þótt þær hafi þróazt á sinn sérstaka hátt, aðrar spretta af nýjum sjónarmið- x) Hegels sámtliche Werke, útg. Jo- hannes Hoffmeister, II. bindi, Leip- zig 1937, bls. 141—150.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.