Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Side 8

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Side 8
Tímarit Máls og menningar neinir írar, þótt við reynum stundum að rekja ti! þeirra frændsemi. Þjóð- frelsisbaráttu okkar skortir með öllu hina feiknlegu dramatísku dráttu írskrar sögu. En okkur tókst samt að ná því marki sem við stefndum að eftir hálfgerða pólitíska eyðimerkurgöngu í um það bil 70 ár. Og við náð- um þessu marki á þeirri smndu er Evrópa var löðrandi í blóði. Um það leyti er fulltrúar Islendinga og Dana voru að semja um réttarstöðu Islands, fyrra hluta júlímánaðar 1918 var það bæði grunur og vissa flestra að til úrslita væri að draga í heimsstyrjöldinni á annan hvorn veginn. Allt frá vordögum ársins 1918 hafði þýzki herinn háð linnulausa sókn í vesmrátt. Þetta var síðasta teningskast Ludendorfs hershöfðingja, ef það brást þá var ósigur Þjóðverja vís. En hvor aðilinn sem sigra mundi, þá var vitað að friðargerð yrði samin að lokinni styrjöld. Það yrði höndlað, kaupsýslað og prúttað um þjóðir og þjóðabrot og um landamæri. Islenzku stjórnmálamenn- irnir sem sátu þessar júlívikur að samningum við fulltrúa Dana ótmðust það allra mest, að á evrópskum friðarfundi yrði Island notað sem pólitísk skiptimynt, ef það væri áfram óaðskiljanlegur hluti Danaveldis, svo sem það var lögum samkvæmt. Því var það að íslenzku samningamennimir hvikuðu ekki frá tveimur sáttmálaákvæðum: að Island væri fortakslaust viðurkennt fullvalda ríki og í annan stað var Danastjórn falið að tilkynna það öllum ríkjum, að Island væri hlutlaust ríki án hers og flota og tæki því ekki þátt í neinum hernaðarbandalögum. Þessi tvö ákvæði voru megin- kjarni sáttmálans 1. desember 1918. Með þessum ákvæðum var allt það gert sem í mannlegu valdi stóð til þess að losa Island við erlenda íhlutun og standa víðs fjarri hverri þeirri landaskipan sem sigurvegurunum dytti í hug að koma á laggirnar. Hlutleysið var tannfé hins íslenzka fullvalda ríkis, staðreynd sem verður ekki þöguð í hel né að engu gerð með skýr- ingum og lögkrókum, enda þótt orðið sjálft sé nærri því talið til klámbók- mennta í því pólitíska dýraríki, sem nú gegnir nafninu lýðveldið Island. Sáttmálinn frá 1918 var svo haglegur að allri gerð, að hann gaf Islend- ingum kost á að auka valdsvið sitt innan vissra tímamarka og það sem ekki skipti minnstu máli: þeir gátu sagt sáttmálanum upp. Þetta var gert sem kunnugt er með lýðveldisstofnuninni 1944. En þetta var í rauninni létt verk og löðurmannlegt; við vorum í náðinni hjá stórveldum þeim, sem höfðu ýmist hernumið okkur eða samið við okkur um tímabundna hern- aðaraðstöðu á Islandi: þau klöppuðu okkur á kollinn og klóruðu okkur undir hökunni and we were good guys og hlumm blessun guðs og manna þegar við gengum að stofnun íslenzka lýðveldisins. Þetta var sjálfsagður 102
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.