Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Page 28

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Page 28
Tímarit Máls og mcnningar Til máls tekur konungur, sviptur kórónu sinni: Hlýt ég að gera svo? að rekja sundur minn glappa-vef? Æ, góði jarl, ef þín mistök öll væru skráð á skjal, hvort þætti þér ekki blygðun að, á svona þingi, að þylja slíka þulu? Og enn er honum varnað margra orða. Valdasviptingin skal fullkomnuð skjótt og afdráttarlaust. Tign konungsins verður að afmá. Hinn nýi kon- ungur bíður. Ef fyrri konungur er ekki svikari, þá er sá nýi valdræningi. Það er hægt að skilja ritskoðara Elsabetar drottningar. JARLINN Á NORÐYMBRALANDI: Ljúkið nú, herra, að lesa þetta skjal. RÍKARÐUR KONUNGUR: Ég sé það ekki; augun fyllast tárum; þau blindast þó ei svo af söltu vatni, að ekki sjáist svikarar í hóp. Og ef ég beini sjónum að mér sjálfum, lít ég þar sama svikarann og hina, því sál mín hefur fallizt á að fletta líkama konungs klæðum, . . . Þegar Shakespeare snýr sögu Englands í leikrit, þjappar hann henni saman umfram allt. Því sagan sjálf er meiri háttar leikur en einstök leik- rit um Jóhann, Hinrikana og Ríkarðana. Stórfenglegasti leikurinn er starf hinnar Miklu Vélar. Shakespeare getur skipað árum í einn mánuð, mán- uðum í einn dag, í eitt mikið leikatriði, í þrjú eða fjögur tilsvör, sem fela í sér kjarna sögunnar. Hér eru hin miklu lokaorð valdsviptingar: RÍKARÐUR KONUNGUR: Leyfðu mér þá að fara. BOLBEKKINGUR: Fara, hvert? RÍKARÐUR KONUNGUR: Hvert sem ég horfið get frá yðar augum. BOLBEKKINGUR: Takið hann með í Turnkastala, piltar. Miðvikudaginn næsta veljum vér til krýningar. Þér verðið viðbúnir. (RíkarSur annar, IV, 1) Það líður að lokum. Aðeins einn þáttur er eftir. Hinn síðasti. En sá þáttur verður um leið upphafið að nýjum harmleik. Hann mun fá nýtt 122
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.