Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Page 110
Tímarit Máls og menningar ýmsum þjóðfræðasamtíningi öðrum. Allur þessi samtíningur er að einhverju leyti gagnsamlegur, en gildi hans fer eftir nákvæmni og árvekni höfundanna og sagnamannanna. Seint á s.l. ári kom út bók eftir Guðmund Þorsteinsson frá Lundi um horfna starfshætti1 og minn- ingabrot höfundar ásamt fleiru. Höfundurinn fjallar af nákvæmni um ýmsa starfshætti, sem nú eru horfn- ir, lýsir þeim ítarlega og af eigin reynslu. Höfundurinn er ættaður úr Eiðaþinghá og „síðari áratugi ævinnar" hefur hann dvalizt í Norður-Þingeyjarsýslu. Lýsingar hans og frásögn af þjóð- háttum og starfsháttum eru því úr þeim héruðum, en þar var fyrrum mestur þrifnaðarbúskapur á landinu, tóvinna á hæsta stigi (sbr. Halldóru Bjarnadóttur) og húsbyggingar og öll umhirða fremri en annars staðar á landinu. Af þessu leiddi formfestu í mannlífi og menn- ingarlega reisn, sem einkenndi þessi svæði á 19. öld, eins og fram kemur í frásögnum og lýsingum Guðmundar. Hann lýsir hér ýmsum þáttum og starfs- háttum hins hefðbundna íslenzka bændasamfélags, svo sem smalamennsku, fráfærum, skógerð og íleppum, mó- tekju, torfristu og brauðgerð o. fl. o. fl. Lýsingar á þessum starfsháttum er víða að finna, en hér eru lýsingarnar ná- kvæmari og fyllri og í því er gildi bók- ar Guðmundar fólgið. Margt af þessum starfsháttum átti fullt gildi allt fram undir miðja þessa öld, og því er ekki seinna vænna, að greinagóðar lýsing- ar séu festar á blað um þessi efni. Við- horf til safnana starfsháttalýsinga er t.d. að finna í kaflanum um Síðustu frá- 1 Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi: Horfnir starjshasltir og leiftur frá liðnum öldum. Orn og Orlygur 1975. 168 bls. 204 færurnar, en þær tíðkuðust á fáeinum stöðum á Vestfjörðum fram yfir 1940, í Onundarfirði og á Barðaströnd. Marg- ir ágætir menn skildu nauðsyn þess að tryggja varðveizlu starfsháttanna í riti og myndum og því var viðað að efni í ágæta heimildakvikmynd um fráfærur. Höfundurinn hefur reynt að fá íslenzka sjónvarpið til þess að fullkomna slíka kvikmynd, en þar talaði hann auðvitað fyrir daufum eyrum (sbr. bls. 18), enda ekki við öðru að búast af forráðamönn- um þess fyrirtækis; þeim virðist brýnna að láta gera álappalegar klámmyndir, sem þeir halda að falli í smekk útlend- ingum, en enginn vill svo líta við. Bók Guðmundar er fyrst og fremst starfsháttalýsing, en einnig eru hér sagnaþættir og ferðalýsingar og frá- sagnir af störfum hans sjálfs auk at- hugasemda um mismun fyrri tíða og nútímans. Höfundurinn minnir stund- um á Cato gamla í útlistunum sínum á nútímanum og að sumu leyti minnir bókin á rit þessa sæmdarmanns, De re rustica, sem er rit um landbúnað í Rómaveldi auk frásagna höfundar af ýmsum fyrirbærum, sem snerta landbún- að þeirra tíma og samanburðar við gullna fortíð rómversks bændasamfé- lags. Gagnrýni Catos var vissulega rétt- mæt, og sama gildir um gagnrýni Guð- mundar, sem er maður hefðbundins samfélags. Guðmundur á miklar þakkir skilið fyrir þessa skemmtilegu og þörfu bók og umsögn dr. Kristjáns Eldjárns í for- mála að bókinni er fyllilega réttmæt: „að slík heimildaskráning er aldrei nógu mikil hvað þá of mikil". Enda gæti það gerzt, að kaflar Guðmundar um brauð- gerð og mótekju yrðu tímabærir í raun innan færri ára en álíta mætti í fljótu bragði. Siglaugur Brynleifsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.