Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 106

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 106
Tímarit Máls og menningar höfundar, að í henni er ekki greint frá niðurstöðum eigin rannsókna, held- ur er hún gagnrýnið yfirlit yfir rann- sóknir annarra manna. Verk af þessu tagi hafa tíðkazt mjög á seinni árum, einkum í enskumælandi heimi. Engu að síður er hér um að ræða fremur óvenjulegt „review of researches" að því leytinu að það er mun umfangs- meira en venjulegt er, samið á breiðari grundvelli og efnistök sjálfstæðari og persónulegri. I bók sinni tekur höfundur sér fyrir hendur að gera grein fyrir framlagi sál- fræðinga til skilnings á frumlegri sköp- unargáfu. Hann greinir frá kenningum og rannsóknum og athugar þær vand- lega með tilliti til kosta og galla, um- taks, aðferðafræði, ályktana. Allt er þetta gert í þeim tilgangi að leita svara við ráðgátu, sem höfundi hefur verið áleitin um árabil. Þá ráðgátu setur hann fram í eftirfarandi spurningum í upp- hafi bókar: „Hvað einkennir vitundar- starf hins frjóa hugvitssnillings eða list- sköpuðar? Er frumleiksgáfan ásköpuð í þeim skilningi, að hún þróist óháð ytri áhrifum? Er unnt að vekja hana og rækta með sérhæfðum aðferðum? Uppvöxtur og öflun æðstu menntunar kostar meira en þriðjung einstaklings- ævinnar. Að hvaða marki er stefnt með nemandann, að hvaða marki er honum leyft að stefna á þessu skeiði?“ Þetta eru vissulega engar smáræðis spurningar. Þær fjalla um eins og höf- undurinn segir „ein hin torráðnustu og jafnframt örlagaríkustu ferli mannlegrar vitundar". Svörin liggja heldur ekki á lausu og eru flest ófundin enn. Höf- undurinn verður í þess stað að treysta því, að lesandi hafi „nokkra ánægju af því að sjá, hve ákaft lærðir menn brjóta heilann um vitundarlíf hans.“ Fyrstu fimm kaflar bókarinnar eru eins konar aðfararkaflar. Þar eru leidd- ar saman og gaumgæfðar ýmsar helztu skilgreiningar sköpunargáfu. Skyggnzt er inn í verkstöð hins skapandi hugar eins og snillingar vísinda og lista hafa lýst því sjálfir, þegar sköpun fer fram. Þá er fjallað allrækilega um hið ómeð- vitaða hugarstarf og bælingarkenningu Freuds er lýst. í sjötta kafla bókar er gripið á því, hvaða aðferðum sálfræðingar hafa beitt og beita til að greina sköpunargáfu. Er þar úr fjórum aðalaðferðum að velja: 1. Könnun á ævisögum manna, „sem hafa sannað frábærar gáfur sínar á svo ótvíræðan hátt, að enginn vefengir yf- irburði þeirra.“ 2. Rannsóknir á frum- legri sköpunargáfu í þróun. 3. Skap- gerðargreining, þ.e. „að greina í sálar- lifinu þá meginþætti, sem menn telja snerta frumlegt sköpunarstarf, ýmist til örvunar eða öftrunar.“ 4. Rannsóknir á snilligáfu samtíðarmanna. Næstu níu kaflar (7—16) eru svo út- tekt á þessu rannsóknarstarfi sálfræð- inga. Er þetta meginhluti bókarinnar, hátt á annað hundrað blaðsíður. Þar er fjallað um allar helztu kenningar og rannsóknir, sem fram hafa komið og gerðar verið frá því að bretinn Sir Francis Galton hóf hið merka braut- ryðjandastarf sitt laust fyrir síðustu alda- mót. I þessum köflum er víða komið við sögu og að mörgu vikið. Langmest- ur hluti umræðunnar er helgaður störf- um fræðimannanna Guilfords, Termans, Cox, Cattells, Getzel og Jacksons, Wallach og Kogans, McKinnons, Anne Roe. Eftirtektarvert er hversu mikið far höfundur gerir sér um að brjóta kenn- ingar og rannsóknaniðurstöður til mergj- ar. Af mikilli skerpu og glöggskyggni 216
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.