Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 108

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 108
Tímarit Máls og menningar að tala. Sköpunargáfan er metin með hliðsjón af mælanlegum árangri henn- ar. Höfundur segir svo: „A sviði tækni og raunvísinda sannar eða afsannar árangur sköpunarviðleitninnar gildi sitt oftast ótvírætt og er rannsóknarmönn- um að því nokkur stuðningur. Sköpun á sviði orðlistar, tónlistar og myndlistar leiðir ósjaldan til tvíræðs og umdeilan- legs árangurs, sem á viðurkenning sína undir tímabundnum sveiflum fegurðar- mats og jafnvel lægri sjónarmiðum." Þegar sköpunargáfuhugtakið hefur þannig verið þrengt, er ekki að undra þótt samsvörunin við greind verði mik- il. Höfundur virðist taka þessa þreng- ingu sem sjálfsagðan hlut, sbr. eftir- farandi niðurlagsorð hans í 15. kafla: „Er frumleg sköpunargáfa virk á hvaða vitsmunastigi sem er, sjúklegur van- þroski vitaskuld undanskilinn? Ekki er mér kunnugt um vísindalegar forsend- ur, sem unnt væri að draga af óyggj- andi ályktanir um þessa ráðgátu. Merkir sálfræðingar sem fullyrða hiklaust að frumleg sköpunargáfa sé hverjum manni ásköpuð og eðlislæg, játa þó að ekki verði færðar sönnur á þetta hjá fólki með mjög lágþróaða greind vegna þess, að það hafi engin vitsmunaleg tök á að sýna hana í orði eða verki. Þessi játning er þung á metunum, því að það er einmitt eðli frumlegrar sköpun- argáfu að uppgötva og skapa og tjá sig þannig í sköpunarverkum sínum. Meðan engin slík ferli finnast hjá lág- greindu fólki, verður fullyrðingin, að frumleg sköpunargáfa sé öllum mönn- um eðlislæg líkt og málgáfan, að skoð- ast sem fremur ósennileg tilgáta. Eg leyfi mér að geta þess, að ég hef rann- sakað greindarþroska mikils fjölda barna og unglinga, bæði hjá óvöldum hópi, þ.e. tilviljunarkenndu úrtaki einstakl- inga af öllum greindarstigum, og auk þess hjá allfjölmennum hópi tornæmra, en þó skólahæfra einstaklinga. Þessar rannsóknir benda eindregið til þess, að með mjög lággreindu fólki bærist eng- in frumleg sköpunargáfa. Flesta þá þætti bæði í skapgerð og vitsmunum, sem eru forsenda og auðkenni frumlegrar sköp- unargáfu, skortir átakanlega hjá lág- greindu fólki. Háþróaðri greind fylgir aftur á móti sjálfgleymin einbeiting að viðfangsefninu og mjög oft ólgandi ímyndunarafl og samsvarandi sköpunar- gáfa, þó að hitt beri einnig við, að einstaklingar gæddir ágætri greind, víki sem minnst frá viðurkenndri þekkingu og auðsönnuðum raunveruleik." Síðustu þrír kaflar bókarinnar, sem f jalla um eflingu á sköpunargáfu, eink- um í skólastarfi, hvíla á þeim skilningi, sem fram kemur í framangreindri til- vitnun. Nú er í sjálfu sér einungis gott eitt um það að segja, að reynt sé í skóla- starfi að rækta og ýta undir vitsmuna- legan sköpunarmátt hjá vel gefnum börnum og unglingum. Og það er vissu- lega bæði satt og rétt, sem höfundur segir, að „þessi þáttur vitundarlífsins hefur verið vanræktur i fræðslu- og uppeldisstarfi skólanna." Hugmyndir og tillögur þeirra fræðimanna, sem höf- undur skýrir frá eru og margar hverjar hinar gagnlegustu, og þá ekki síður vel- yfirvegaðar leiðbeiningar hans sjálfs. Er þetta vissulega holl lesning fyrir marga. En þar með er ekki sagt að vísindaleg sköpunargáfa sé hið sama og frumleg sköpunargáfa í heild sinni (á þá skoð- un virðist mér höfundur kominn í síð- ari hluta bókar, þó að það stangist á við það sem er að finna í fyrri hluta). Hún er hluti hennar, og raunar sá hlutinn, sem hinar tæknivæddu iðnaðar- 218
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.